01.06.1918
Neðri deild: 37. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 648 í C-deild Alþingistíðinda. (2361)

5. mál, laun íslenskra embættismanna

Forsætisráðherra (J. M.):

Það er best, þegar mótmælt er, að mótmæla þá því, sem sagt er, en ekki því, sem aldrei er sagt. Jeg sagði ekki, að nefndin hjeldi því fram móti betri vitund, að ekki ætti að taka einstaka liði út úr launaheildinni, eða að ekki væri ástæða til að taka þennan einstaka lið út, sem hjer er um að ræða. En hitt sagði jeg, að nefndin gerði það móti betri vitund, ef hún hjeldi því fram, að órjett væri að gera þessa launabreytingu fyrir þá sök eina, að með því væri tekinn einstakur flokkur út úr heildinni. Því þegar þingið í fyrra tók út úr alla póstmenn, og þingið núna alla símamenn, þá er ekki hægt að segja, að hjer sje verið að stiga neitt nýtt spor. Þetta er því ekkert nema misskilningur hjá hv. þm. Borgf. (P. O.). Sem sagt er það ákaflega góð regla, þegar mótmælt er, að vita, hverju maður er að mótmæla.