31.05.1918
Neðri deild: 36. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 451 í B-deild Alþingistíðinda. (241)

63. mál, dýrtíðar- og gróðaskattur

Framsm. (.Magnús Guðmundsson):

Það lítur út fyrir, að till. nefndarinnar ætli að valda nokkrum ágreiningi. Sumir telja þær ganga of langt, aðrir of skamt, og er ef til vill ekki fjarri sanni að álíta, að þá muni till. vera nærri því rjetta, því að oft liggur hið rjetta miðja vega milli þeirra, sem lengst fara, og þeirra, sem skemst fara.

Jeg skal geta þess um þá menn, sem hafa 30—50 þús. kr. tekjur, að 30 þús. eru ekki háar tekjur, ef tekjuhafinn leggur fje sitt í hættu til þess að afla þeirra. Það, sem hann græddi þetta árið, gæti hann hæglega mist næsta ár. En 30 þús. kr. eru góðar tekjur þeim, sem eigi þarf að leggja fje sitt í hættu. Frv. gerir engan mun á þessu tvennu, enda er það ekki auðvelt. Þess vegna tel jeg þá leiðrjetta, sem nefndin hefir valið, að hjer sje farið varlega, að menn þessir sjeu heldur allir undanþegnir aukaskatti en að þeim sje fleirum eða færri stofnað í hættu með skattaálögum.

En um hitt atriðið, að nefndin lækkaði hundraðstöluna, er það að segja, að með því hafði hún fyrir augum, að bæjar- og sveitarfjelögum er með frv. til dýrtíðarlaga, sem nú liggja fyrir Alþingi, gefið undir fótinn að nota sjer líka gróða þessara manna, með auknum álögum til dýrtíðarhjálpar.

Heyrst hafa og raddir um það, að eigi væri tilhlýðilegt að leggja skattinn á fyrir árið 1917. Jeg fæ ekki sjeð, að þetta álit sje á nokkrum rökum bygt. Og minna má á það, að í fyrra var hjer í deildinni samþ. samskonar ákvæði, að því er snerti árið 1916, og þá hneykslaðist enginn á.

Engin deila stendur milli stjórnarinnar og nefndarinnar um stefnu þessa máls. Báðar vilja fara sömu leiðina, en þeim ber að eins ekki saman um það, hversu langt skuli farið. Það hefir verið fundið frv. til foráttu, að meginstyrjaldargróðinn sje nú fram hjá farinn; en vitanlega er samt enginn skaði skeður, þó að málið næði fram að ganga. Afleiðingin yrði þá að eins sú, að landssjóður bæri ekkert úr býtum. En jeg trúi alls ekki, að sú verði reyndin á.

Háttv. 2. þm. Árn. (E. A.) gerði mikið veður út af 1. gr. frv. Hann vildi skilja hana á þá leið, að 1.500 kr. aukaskattur skyldi lagður á tekjur, er næmu 30 þús. kr. En þessi skilningur er rangur. Frv. gerir ekki ráð fyrir, að lægri tekjur en 30 þús. kr. skuli skattskyldar í því efni, er hjer ræðir um. (E. A.: Það er ekki rjett). Háttv. þm. (E. A.) skilur þá ekki frv. (E. A.: 3X5 eru þó 15). Með þessum reikningi sýnir háttv. þm. (E. A.) einmitt, að hann hefir misskilið frv., því að hann vill reikna með tekjur undir 30 þús. kr. En það er ekki rjett, eins og auðsætt er af því, að í frv. stendur „frá og með 30 þús. kr.“. En nefndin hefir nú samt sem áður orðað þetta svo, að hvergi getur valdið misskilningi.

Þá ber og að taka það til greina, að lægri tekjur en 30 þús. kr. þurfa alls ekki að vera styrjaldargróði. Þær geta fengist af atvinnu, sem gæfi slíkar tekjur af sjer á venjulegum tímum.

Til þess að sýna fram á það, að hjer er sannarlega ekki farið vægt í að skatta háar tekjur, skal jeg benda á það, að af 300 þús. kr. tekjum mun skattur nema í alt til landssjóðs um 67.000 kr., og þegar þar við bætist skattur til sveitar- og bæjarfjelaga, sjest, að það er ekki lítill partur teknanna, sem fer í skatta. Og gagnvart þeim, sem telja tilgangslaust að samþ þetta frv. vegna þess, að það muni engar tekjur gefa í landssjóðinn, skal jeg benda á það, að eigi þarf nema 2—3 menn með 300 þús. kr. tekjum til þess, að af þessu frv. komi eins miklar tekjur og af frv. um hækkun vörutolls, sem vel þótti ómaksins vert að samþ. hjer í þessari háttv. deild um daginn. Og jeg veit að minsta kosti um 2 menn, sem höfðu þessar tekjur árið 1917.

Að endingu vil jeg mælast til þess fyrir hönd nefndarinnar, að brtt. hennar verði samþyktar hjer í háttv. deild, því að jeg efast ekki um það, að þær verða að miklu gagni.