31.05.1918
Neðri deild: 36. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 459 í B-deild Alþingistíðinda. (244)
63. mál, dýrtíðar- og gróðaskattur
Fjármálaráðherra (S. E.):
Jeg vil að eins gera örstutta athugasemd við ræður háttv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) og háttv. 2. þm. Árn. (E A.). Þeir hjeldu því fram, að mjer skildist, að þessi skattur, sem lagður yrði á gróðamennina, væri eins nærgöngull við öreigana og skattur, sem lagður væri beinlínis á þá. Þetta nær nú ekki neinni átt.
Enda er öruggasta sönnunin fyrir því sú, að gróðamennirnir hamast jafnan gegn svona sköttum, ekki vegna þess, að þeir komi hart niður á fátæklingana, heldur af hinu, að þeim finst þeir of nærgöngulir við sig. Og að því er verslunarrekendur snertir, þá vilja hv. þm. ef til vill halda því fram, að þeir leggi skattinn á vörurnar. Já, það má vel vera, en vanalega er lagt svo mikið á vörurnar, að skatturinn kemur að allega við „privat“-gróðann. Auk þess kemur þessi skattur á ýmsa aðra en verslunarrekendur, og enginn vafi er á því, að engin skattalög fremur en þessi sneiði fram hjá fátæklingunum.
Þá mintist háttv. 2. þm. Árn. (E. A.) á tvö önnur tekjuaukafrv., sem stjórnin hefir komið með, sem sje vörutollsfrv. og frv. um stimpilgjald, og hann taldi þessi frv. ná jafnt til ríkra sem fátækra. Jeg skal játa það, að þessi skattafrv. koma of mikið við þá, sem fátækir eru, og það var af þeim ástæðum, að stjórnin lagði til, að ekki yrðu hækkaðir nema tveir liðir í vörutollinum. En þessi frv. eru þó fram komin af því, að þau voru nauðsynleg, eins og hag landsins er háttað nú sem stendur. Auk þess óvíst eftir undirtektunum frá síðasta þingi, að hægt væri að koma eins rjettlátu frumvarpi og þessu gegnum þingið, og jeg verð að segja, að í byrjun þingsins datt mjer ekki í hug, að hægt mundi vera að koma því áleiðis. En nú eru horfurnar aðrar, og þetta sýnir, og það gleður mig, að augu manna hafa opnast meir og meir fyrir nauðsyninni á tekjuauka og fyrir því, hve tekjuauki, einnig þessi, er rjettlátur. En það er augljóst, að slík lög sem þessi hljóta að mæta mikilli mótspyrnu, hjer eins og annarsstaðar, og það er eðlilegt, þar sem þeir menn, sem þau koma við, eru auðugustu menn þjóðfjelagsins.
Háttv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) virtist vera að álasa stjórninni fyrir það, að hún hefði ekki komið fram með áætlun um, hversu mikill gróði mundi verða af þessu frv. En í sannleika sagt sá stjórnin sjer ekki kleift, eftir þeim gögnum, er fyrir lágu, að koma með neina ábyggilega áætlun um það. Og þó að áætlun hefði mátt gera fyrir Reykjavík, þá dugði það ekki, því að jeg geri ráð fyrir, að utan Reykjavíkur sjeu margir, sem verða skattskyldir samkvæmt þessum lögum, en um þá verður ekkert sagt. Og jeg verð að álíta, að það sje betra að koma með enga áætlun um slíkt heldur en að koma með einhverja málamyndaáætlun, sem ekkert má byggja á.
Þá var það eitt atriði í ræðu háttv. þm. V.-Sk. (G. Sv.), sem kom mjög flatt upp á mig, og það var, að jeg gat ekki skilið betur en svo, að hann teldi þetta frv. fram komið til þess, að hægt væri að ná í gróða af 2—3 mönnum, gróða, sem þeir hefðu átt að fá fyrir tilviljun eina. Vitanlega á þetta frv. að ná til allra, sem hafa hægan gróða, en það er langt frá því, að það sje fram komið vegna sjerstakra manna. Þetta er því alveg eins skaðlaust og ef jeg segði við háttv. þm. V.-Sk. (G. Sv.), að hann væri á móti þessu frv. vegna þess eins, að það lenti á 2—3 mönnum, er væru vinir hans. En slíkar aðdróttanir kem jeg hvorki með í hans garð nje annara.
Þá talaði háttv. 2. þm. Arn. (E. A.) um það, að ekki mætti þrengja um of að þeim mönnum, sem hjeldu uppi atvinnuvegunum og bæru þyngstu álögur landssjóðs En þess ber líka að gæta, að alþýða manna heldur líka uppi atvinnuvegunum með vinnu sinni o. fl., og ekki má heldur þrengja svo mjög að henni, að hún sjái sjer ekki farborða. Ekki græddu atvinnuvegirnir á því. Þingið heimtar tekjur fyrir landssjóðinn, og því verður að leggja skattana á þá, sem breiðast hafa bakið.