18.06.1918
Efri deild: 46. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 470 í B-deild Alþingistíðinda. (259)

63. mál, dýrtíðar- og gróðaskattur

Fjármálaráðherra (S. E.):

Hv. þm. Ísaf. (M. T.) sagði, að jeg ætti erfitt með að verja málstað minn, en jeg lít alt öðruvísi á það. Jeg þykist eiga mjög hægt með það.

Vanalega þykist jeg hafa góðan málstað að verja, en þó sjaldan betri en nú.

Hann tók það fram, háttv. þm. (M. T.), gegn tekjuskattinum, að lágmark fiskverðsins væri ekki nema 170 kr., og dró af því þá ályktun, að ekki mætti hafa háan skattinn.

En nú eru það stórgróðamennirnir, sem kaupa fiskinn við þessu lága verði, og niðurstaðan verður því sú, að einmitt þetta ójafna verðlag gerir ástæðuna enn þá ríkari til þess, að hafa skattinn hærri.

Sami háttv. þm. (M. T.) talaði í meðaumkvunarróm um veslings fátæku útgerðarmennina, sem hafa 30-40 þús. kr. í tekjur. En jeg verð að játa það, að við hinir getum ekki tárfelt af meðaumkvun til þeirra manna og teljum þá ekki í öreigahóp.

Yfirleitt verð jeg að líta svo á, að háttv. þm. Ísaf. (M. T.), sem annars er rökfimur maður, hafi tekist afarilla að sýna fram á, að ekki mætti leggja á þennan skatt, og ef hann kemur með fleiri röksemdir líkar þeim, sem nú hafa sjest, þá efast jeg ekki um, að till. meiri hl. muni bera sigur úr býtum.

Út af fiskverðinu vildi jeg taka fram, að mjer virðist, að ekki verði hjá því komist að reyna að jafna því, og hefir það verið tekið til yfirvegunar, enda engin meining, að sumir fengju lága verðið, 170 kr., en aðrir hærra verðið.