14.05.1918
Neðri deild: 22. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 167 í B-deild Alþingistíðinda. (28)
4. mál, almenn dýrtíðarhjálp
Framsm. minni hl. (Jörundur Brynjólfsson):
Það var að eins eitt atriði í ræðu háttv. þm. N.-Ísf. (S. St.), sem jeg vildi lítillega minnast á. Hann sagði, að við mundum hafa komist alveg eins vel af, þó að engin dýrtíðarhjálp hefði verið veitt. Þessu verð jeg eindregið að mótmæla, því að jeg get ábyrgst, að allur þorri þeirra manna, sem fengu dýrtíðarhjálp eða dýrtíðarvinnu í vetur er leið, voru hennar sárþurfandi. Með henni var afstýrt neyð, og væri best, að háttv. þm. (S. St.) nefndi nöfn þeirra manna, sem borið hafa það í eyru honum, að hjálpin hafi verið einkis virði eða óþörf.
Jeg vil þá og víkja að því, er háttv. þm. (S. St.) sagði, að hann treysti því, að við gætum komist af án hjálpar. Jeg efast stórlega um, að hann sje þar framsýnni en aðrir menn, sem hjálpa vilja, eða gera vilja ráð fyrir, að til þess geti komið, enda er það ekki nóg að vera að tala um, að landssjóður þoli ekki ný útgjöld, hvað mikið sem á liggur, en reyna þá ekki að benda á nýjar tekjulindir fyrir landið og landsmenn. Hann (S. St.) er nú búinn að sitja víst á nrfelt tuttugu þingum og aldrei sjeð þörf landssjóðs til að afla tekna. Og þó hafa tekjulindir verið nægar í landinu, og ekki nærri eingöngu notaðar af landsmönnum, heldur hafa og útlendingar grætt hjer árlega um langt skeið, svo að miljónum króna skiftir, á fiskveiðum, og sá tekjustofn blasað við hverjum, sem hafði opin augun fyrir nauðsyninni á að auka tekjur landsins. Þar hefir hann ekki sýnt mikla framsýni. (S. St.: Jeg hefi aldrei verið á móti tekjuauka í landssjóðinn). Það er ekki nóg, þótt þm. (S. St.) hafi ekki verið á móti tekjuauka; hann hefði átt að eiga frumkvæðið að honum. Af þeim, er framarlega standa, er það heimtandi. Ekki nema sjálfsögð og rjettmæt krafa.