23.04.1918
Neðri deild: 8. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 506 í B-deild Alþingistíðinda. (321)
16. mál, mótak
Pjetur Ottesen:
Jeg lagði aðaláhersluna á það í ræðu minni, að eftir þessu frv. gætu sumar jarðir verið ofurseldar eyðileggingu af gerræði manna. Jeg get ekki sjeð annað en að þetta sje rjett álitið, enda getur hv. flutnm. (M. G.) ekki mótmælt því.
Það þýðir ekkert fyrir háttv. flutnm. (M. G.) að vera að draga það nokkuð í efa eða gera lítið úr því, að það sje alvarlegt atriði, hvernig frá gröfunum sje gengið. Og þá væri það ekki síður alvarlegt, ef menn mættu taka mó upp í skjóli þessa frv., þar sem dýrmætustu eignir manna, tún og engjar og annað ræktað land, eru ofurseldar jarðraski og eyðileggingu.
Það þýðir ekkert að vera að vitna í samþyktir, sem nálega hvergi eru til. Menn standa jafnvarnarlausir uppi fyrir því.
Þess ber og að gæta, að þar sem lög þessi eiga að koma svo fljótt í gildi, hafa menn ekkert ráðrúm til þess að koma slíkum samþyktum á nú, Alt tal um þessar samþyktir er því út í hött, hvað það snertir, að jarðeigendum sje nokkur vörn í þeim að svo stöddu.
Það er ekki rjett hjá háttv. flutnm. (M. G.), að jeg haft sagt, að með frv. þessu yrði meiri mór tekinn upp en ella myndi, en hitt sagði jeg, að menn myndu hópast þangað, sem best væru mólöndin, og engu þyrma; þar er hættan fólgin í.
Háttv. flutnm. (M. G.) sagði, að það ætti að sitja við þá samninga, sem nú væru milli jarðareiganda og leiguliða. Þetta er ekki rjett. Hvað stoðar það t. d., þótt byggingarsamningar hljóði upp á það, að leiguliði megi ekki láta neitt af hendi af landsnytjum. Þar með er honum auðvitað bannað að selja mótak. Slíkir samningar mundu ná allskamt, hugsa jeg.
Það er þó alls ekki loku fyrir það skotið, að jeg geti gengið inn á meðalveg í þessu máli, þó því að eins, að eigna- og umráðarjettur manna sje nokkurn veginn trygður.
Jeg læt mjer í ljettu rúmi liggja, í hvaða nefnd málið fer, og geri það ekki að neinu kappsmáli.