27.04.1918
Neðri deild: 11. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 521 í B-deild Alþingistíðinda. (353)

20. mál, eftirlaun handa Birni bankastjóra Kristjánssyni

Flm. (Þorleifur Jónsson):

Vjer flutningsmenn lítum svo á, að þetta frv. væri svo einfalt, ljóst og óbrotið, að það þyrfti ekki að fara í neina nefnd. Og mjer virðist enn, sem það sje ekki svo flókið eða margbrotið, að nefnd þurfi í það.

Eiginlega er hjer ekki nema um tvent að ræða, annaðhvort að samþ. frv. eða fella. Auðvitað gæti það komið til mála að breyta upphæðinni, sem um er að ræða, en þó ímynda jeg mjer, að nefnd myndi ekki gera mikla breytingu á því, og fara mjög í sama farið og þegar fyrverandi bankastjóra Tryggva Gunnarssyni voru veittar 4.000 kr. í eftirlaun.

Jeg sje ekki, að það geti skaðað málið, að það færi í nefnd, en hins vegar sje jeg enga knýjandi ástæðu til þess. Verð jeg því heldur á móti því, að málið fari til nefndar.