27.04.1918
Neðri deild: 11. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 521 í B-deild Alþingistíðinda. (355)

20. mál, eftirlaun handa Birni bankastjóra Kristjánssyni

Sigurður Sigurðsson:

Gagnvart þessum andmælum gegn því að vísa málinu til nefndar vil jeg taka það fram, að um mjög skyld frv. hefir það verið regla að vísa þeim til nefndar. Það mátti t. d. segja, er ræða var um það, að stofna prófessorsembætti í hagnýtri sálarfræði við Háskóla Íslands, að þar væri ekki að ræða um nema eitt af tvennu, annaðhvort að stofna embættið eða ekki. Þó var því vísað til nefndar í báðum deildum og mikið um það rætt. Eins er um þetta frv., þótt ekki kunni að vera að ræða þar um nema 2 leiðir. En þær geta nú ef til vill verið fleiri. — Það geta vel verið þær hliðar á þessu máli, sem vert sje að athuga, enda þótt frv. sje stutt og ljóst og flutningsmenn þess margir, eins og jeg sagði áðan.

Held jeg því fast við uppástungu mína um, að málinu sje vísað til allsherjarnefndar.