17.05.1918
Neðri deild: 25. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 184 í B-deild Alþingistíðinda. (36)

4. mál, almenn dýrtíðarhjálp

Sigurður Sigurðsson:

Jeg kvaddi mjer hljóðs aðallega til þess að minna hv. þm. á brtt. mína á þgskj. 133.

Hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) hefir vakið að nokkru athygli á henni, og jeg er honum þakklátur fyrir það og yfirleitt fyrir undirtektirnar. Jeg ætla ekki að eyða löngum tíma í það að gera grein fyrir þessari tillögu, því að það hefir verið gert áður. Till. kom sje fram við 2. umr., en komst þá ekki til atkvæðagreiðslu vegna sjerstakra atvika. Hún var sem sje viðaukatillaga við brtt. hv. meiri hluta bjargráðanefndar. En þær voru feldar, og voru því ekki greidd atkvæði um þessa till. En þó að till. háttv. meiri hluta hafi fallið, sannar það ekki, að þessi till. mundi hafa verið feld, Jeg vona því, að tillagan sje borin fram í fullum rjetti og brjóti ekki í bága við þingsköpin. Brtt. þessi er gerð við 6. gr. stjórnarfv. og fer fram á, að á eftir orðunum: „í beinar þarfir framleiðslunnar“, komi:

svo sem til þess að reka garðrækt og heyskap í stórum stíl og að framkvæma stærri áveitufyrirtæki að meira eða minna leyti, eftir því, er um semur við þá, er eiga hlut að máli um þau verk.

Þessi till. skilgreinir því, hvaða framleiðsluverk sjerstaklega beri að leggja áherslu á. Háttv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) gat þess í ræðu sinni, að ekki væri þörf á þessu, en þó gat hann þess hins vegar, að till. væri ekki óþörf, og yfirleitt fanst mjer hann styðja hana með ræðu sinni. Jeg er honum samdóma um það, að svo megi álita, að ef til vill sje hennar ekki bein þörf, en á hinn bóginn tel jeg hana til bóta, og því vænti jeg, að háttv. deild samþykki hana. Jeg held, að mjer sje óhætt að láta þess getið, að bjargráðanefndin muni ekki amast við till., en hún hefir ekki tekið beina afstöðu til hennar, og er því algerlega óbundin um atkvæði sín gagnvart henni.

Tilefnið til tillögunnar er í sjálfu sjer ósköp einfalt, ekki annað en að fá heimild handa stjórninni til þess að ráðast í þessi fyrirtæki, ef þörf krefur. Og jeg verð að segja, að það er lítið traust til stjórnarinnar í því fólgið, ef háttv. deild treystir henni ekki til þess að fara svo með þessa heimild, að vel megi við una. Jeg verð því að líta svo á, að ef tillagan verður ekki samþykt, þá sje fólgið í því hálfgert vantraust til stjórnarinnar í þessu efni.

Að endingu vil jeg undirstrika þetta og taka það strangt fram, að stjórnin gæti haft gott af slíkri heimild, ef vandræði og atvinnuleysi ber að höndum. Jeg vona því, að háttv. deild taki brtt. vel.