11.05.1918
Neðri deild: 20. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 531 í B-deild Alþingistíðinda. (365)

20. mál, eftirlaun handa Birni bankastjóra Kristjánssyni

Bjarni Jónsson:

Það fæst vonandi fyrir þessum miklu föðurlandsvinum að tala um frv., þótt ekki megi tala um till., sem fer eitthvað í bága við þeirra ágæta vilja, og er vonandi, að það verði í minnum haft, hve óðfúsir vissir menn voru að koma að till. En þess er að geta, sem gert er, og þótt jeg geti ekki komið fram till. hjer, þá hefi jeg þó alla hentugleika til að láta alþjóð fá að vita, hvað hjer hefir verið afrekað, svo að hún megi heyra og skilja, hvað fram fer hjer á Alþingi, og skal það eigi síður gert fyrir þá greiðvikni, er mjer hefir sýnd verið. (S. St.: O-já, við erum ekki hræddir). Hann segist ekki vera hræddur, þessi háttv. þm. (S. St.), en ef nokkur hefir ástæðu til að vera það, þá er það hann. En tölum um það síðar.

Nú segja háttv. flutningsmenn þessa frv., að þetta sje trúnaðarstaða svo mikil, að það þurfi endilega að moka eftirlaunum í hvern þann, sem kominn er í hana, og hvernig sem hann er kominn að henni. En það er líka undarlegt, eftir skoðun þessara ágætu manna, að þeir ímynda sjer sjerstaka ástæðu til að láta einn mann, sem gegnir þessari ákaflega miklu „trúnaðarstöðu hjá þjóð vorri“, fá eftirlaun, en engan annan, er sömu stöðu gegnir. Jeg tala hjer sjerstaklega til þeirra manna, sem ekki þorðu að láta þessa brtt. mína komast að, og þykir mjer undarlegt, ef þeir halda það, að það sje einn sjerstakur maður svo sjerlega kjörinn í þessa trúnaðarstöðu, að hann einn eigi að fá eftirlaun, en enginn annar. Jeg hefi heyrt það, að góðir stjórnmálamenn vilji hafa samræmi í því, sem þeir koma með á þingunum, og að það, sem rjett sje að veita einum, það sje einnig rjett að veita öðrum, en það lítur ekki út fyrir, að þessir ágætu menn skilji það; það lítur út fyrir, að þeim hafi verið svo fastir í huga verðleikar þessa eina manns, að þeir sjái ekki verðleika annara, eða virðist koma auga á þá. Og þegar nú þessir ágætu þm. og miklu föðurlandsvinir, sem hjer sitja, sáu, að hjer kom fram till, um að hafa samræmi í því og láta alla þá ágætu menn, sem gegna þessum miklu „trúnaðarstörfum með þjóð vorri“, fá eftirlaunarjett, þá hefðu þeir átt að minnast þess, að rjett var að gera öllum jafnágætum mönnum í öllum jafnmiklum trúnaðarstöðum jafnt undir höfði, en það hefir þeim ekki litist að gera. Jeg þykist nú vita, að þeir muni svara mjer með því, sem stendur í greinargerð frv., að það muni standa til, að hann láti bráðlega af stjórn bankans. En hvað er þetta bráðlega? Hver giskar á nær það verður? Jeg hefi spurt bæði háttv. flutnm. og allsherjarnefnd um það, hvort þessi maður ætlaði að fara frá stjórn bankans, því að það gæti mjög mikið breytt atkvæði mínu um málið, hvort hann er til neyddur, sakir vanheilsu, að segja starfinu lausu, heldur en ef einhver og einhver giskar á, að hann ætli bráðlega að láta af starfi sínu, en hverskonar mælikvarði á tíma þetta „bráðlega“ er, það getur verið nokkuð mismunandi. Það getur vel verið, að maðurinn láti ekki af stöðunni fyr en eftir 15 ár, og það get jeg ekki talið bráðlega. Eða hálfa öld, segir sessunautur minn, Vigurklerkur (S. St.). (Hlátur). Já, hugsum oss, að þegar hann kom í Vigur, hefði verið sagt, að hann ætlaði bráðlega að fara frá, og nú hefir hann setið þar í hálfa öld. Það eru þess vegna engar upplýsingar, þótt háttv. flutnm. frv. (Þorl. J.) láti þess getið, að hann ætli bráðlega að fara frá starfi sínu, en ef jeg væri viss um, að maðurinn ætlaði að fara frá starfinu nú þegar, vegna þess, að hann væri miður sín af vanheilsu til að vinna sjer fyrir lífsviðurværi, myndi jeg undir eins greiða atkvæði með því, að hann fengi eftirlaun, en að veita þau einum manni í þessari ágætu trúnaðarstöðu, það geri jeg ekki.

Eftir því sem háttv. flutnm. (Þorl. J.) sagði um daginn, að það gæti varla staðið lengi, að forstöðumenn bankans ljetu sjer nægja með þessi 6 þúsund krónur, eftirlaunalaust, þá getur vel verið, að það sje lágt fyrir bankastjóra, en borið saman við aðrar stöður landsins, nokkuð miklar trúnaðarstöður, er það ekki svo mjög lágt. Við skulum taka lærðu stjettina, t. d. læknana hjer við Háskólann, sem hafa nokkuð miklar trúnaðarstöður, með því að tjarga lífinu í bankastjóra og aðra menn, og athuga hvort þeir kvarta um, að þeir hafi of lág laun, — eða sagnfræðikennarann þar, Jón Jónsson, þennan ágæta og fróða kennara, — hann hefir eitthvað 2.800 krónur í laun, og enginn talar um, að hann þurfi að fá eftirlaun. Svona gæti jeg talið upp mýmarga, og getur verið, að sumir leggi eins mikið upp úr því, sem þarf að vera og á að vera, svo að rjett sje, eins því einu að halda sem mest í aurana.

Jeg vil ekki rengja þau ummæli flutningsmanna, að maðurinn hafi staðið sæmilega í stöðu sinni, nje rýra hann á nokkurn hátt, ef hann þarf þessara eftirlauna með, en það vil jeg láta um mælt, að stjórnin hefir vissulega altaf valið vel og mun velja vel í þessar stöður, og ætla jeg þess vegna rjett, að annaðhvort njóti allir hins sama, eða enginn.

Jeg mundi hafa sagt eitthvað fleira, ef menn hefðu leyft þessari till. minni að komast að; hefði jeg þá sennilega að ýmsu leyti stutt mál þeirra manna, er hafa haldið því fram, hversu ágætir þeir menn væru, er við þessi störf hafa fengist, en mjer er ekki hægt um vik, þegar þeir vilja útiloka alla menn nema þennan eina mann, því að þótt þeir telji það líklegt, að hann ætli að fara frá, án þess að nokkur skapaður hlutur heyrist um það, þá get jeg ekki trúað því, frekar en öðru, sem jeg heyri úti á götunni, t. d. eins og því, sem mjer var sagt bjerna úti á götunni áðan, að þm. ætluðu að fara að hlaupa heim af þingi.

Jeg hefði kann ske átt að gera mönnum það til eftirlætis að halda dálítið lengri ræðustúf, en mjer þykir þó þetta við hóf, að kosta þessu til, og segi því ekki meira.