12.06.1918
Neðri deild: 47. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 545 í B-deild Alþingistíðinda. (381)

20. mál, eftirlaun handa Birni bankastjóra Kristjánssyni

Sveinn Ólafsson:

Af því að jeg var meðflutningsmaður frv. þessa í upphafi, kann jeg betur við að skýra afstöðu mína til þess, einkanlega vegna þess, að það hefir orðið fyrir breytingum, sem komu mjer á óvart, og líka af því, að svo virðist, sem nefndin örvænti um úrslit þess, ef brtt. nær ekki fram að ganga. Jeg efast líka um, að málið lykti á æskilegan hátt, ef það hrekst deilda millum að nýju.

Um grunsemdir manna á breytingum Ed. skal jeg geta þess, að jeg sje hvergi þá hættu, að bankastjórinn þurfi að fara frá 1. júlí. En lögin heimila honum eftirlaun, hvort sem hann segir af sjer 1. júlí eða síðar. En jeg get ekki lítið á þetta ákvæði sem skipun um, að hann eigi að fara frá l. júlí, enda væri það ekki viðurkvæmilegt Aðalatriðið er, að hann á að fá eftirlaun og er sjálfráður um, hve nær hann segir starfinu lausu; að því vil jeg ganga vísu og vil ekki eiga á hættu, að hrakningur frv. milli deilda valdi óheppilegri úrslitum. Þess vegna mun jeg greiða atkv. með frv. óbreyttu.