12.06.1918
Neðri deild: 47. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 546 í B-deild Alþingistíðinda. (383)

20. mál, eftirlaun handa Birni bankastjóra Kristjánssyni

Frsm (Þorleifur Jónsson):

Það eru að eins örfá orð, í sambandi við ræðu háttv. 1. þm. S. M. (Sv. Ó.).

Hann sagði, að ekki mætti líta svo á að í frv. fælist kvöð á bankastjóranum um að fara frá 1. júlí. Vel getur verið, að svo megi skilja ákvæðið, en beinast liggur þó við að leggja í það þann skilning, að eftirlaunarjettur hans sje bundinn við þennan mánaðardag, þar sem lögboðið er, að honum skuli greidd eftirlaun frá þeim degi, og þar með ákveðið, að hann fari þá frá. — Ef þessi skilningur er rangur, er það gott og blessað; en jeg er hræddur um, að svo verði ekki álitið af dómstólunum og stjórninni.