17.05.1918
Neðri deild: 25. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 193 í B-deild Alþingistíðinda. (40)
4. mál, almenn dýrtíðarhjálp
Einar Arnórsson:
Jeg stóð upp til þess, eins og ýmsir ágætismenn hjer, að gera grein fyrir atkv. mínu. Mjer líkuðu ekki allar till. meiri hl. við 2. umr.; sjerstaklega var eitt ákvæði í þeim alveg óhafandi. Þær voru feldar, sem kunnugt er, en nú eru komnar fram brtt., sem fara í svipaða átt. Það eru brtt. háttv. 2. þm. Eyf. (E. Árna.). Mjer skilst, að ef þær verða samþyktar, þá verði frv. að stofni til nokkuð svipað í öllum aðalatriðum og lög nr. 25, 1917. Lánsheimildin rýmkast, og svo er landsstjórninni, eins og í 2. gr. nefndra laga, veitt heimild til að veita vörulán. Annars er ekki ýkjamikill munur á lögunum nr. 25,1917, og þessum till, nema hvað heimildin fyrir landsstjórnina til að selja kol undir verði, í 3. gr. nefndra laga, fellur burt. Og ákvæði 6. gr. frv. tel jeg hallkvæmari en 4. gr. laganna. En svo finst mjer algerlega vanta inn í frv. um vörulán eða styrki, sem veittir eru sveitarmönnum eftir þessum heimildum, sams konar ákvæði og í 5. gr. laga nr. 25, 1917. En jeg vænti, að háttv. Ed. taki það til athugunar, ef málið kemst þangað.
Ekki get jeg sjeð, að mikil bót geti orðið að brtt. á þgskj. 133, frá háttv. samþingismanni mínum (S. S.). (S. S.: Höggur nú sá, er hlífa skyldi). Það er meira að segja vafasamt, hvort slíkt ákvæði getur ekki orðið hættulegt, ef stjórnin fer að framkvæma það. (S. S.: Þetta er vantraust á stjórninni). Það kemur mjer ekki við. Mjer er sama, þótt það verði álitið vantraust á stjórninni. En vjer skulum taka dæmi. Stjórnin leigir slægjur uppi í Mosfellssveit eða austur í Flóa, ræður margt fólk og verkstjóra til umsjónar. Svo verður hún að útvega verkfæri og vistaföng handa mörgu fólki. Og ef heyskapurinn hepnast, verður hún að byggja skýli fyrir heyin, til að vernda þau undir veturinn. Þau yrðu svo má ske geymd sem varaforði til þeirra, er síðar þurfa. Það getur nú vel verið, að þetta hepnist vel. En það er þó eitthvert áhættumesta fyrirtæki, sem landssjóður getur ráðist í, því að ef illa viðrar, hvað verður þá úr öllu heyinu? (S. St.: Súrhey). Vjer höfum enga tryggingu fyrir því, og jeg býst ekki við, að þeir, sem kæmu til að standa fyrir verkinu eða starfa að því, kunni að gera súrhey. (S. St.: Halldór Vilhjálmsson kann það). Jeg veit ekki til, að stjórnin eigi engjar á Hvanneyri, og býst við, að Halldór hafi nóg að starfa á sínum eigin engjum. Jeg held satt að segja, að súrheysgerð sje ekki svo mikið tíðkuð enn og mishepnist oft. (S. S.: Annar hver maður á Suðurlandi kann að búa til súrhey). Þetta hygg jeg allmiklar ýkjur. Jeg þekki þar sveitir, sem lítið er um súrheysgerð. (S. S.: Háttv. samþingismaður minn (E. A.) hefir ekki komið þar lengi). Jeg hefi komið þar oft, þó að jeg hafi sennilega ekki smogið þar inn í hvert búr eða eldhús. Jeg býst við, að það væri sama, hvort þessi heimild er eða engin, því að jeg geri ekki ráð fyrir, að landið gæti notað hana. Stjórnin gæti að sönnu sent út hirðisbrjef eða pistla til að áminna menn um að heyja vel. En setjum nú samt svo, að stjórnin sæi sjer slíkt fært, þá er till. samt óþörf, því að það er tekið fram í 6. gr. frv., að stjórninni sje heimilt að verja fje úr landssjóði til atvinnubóta „í beinar þarfir framleiðslunnar“. Og þar heyra því enn fremur undir vatnsveitingar, því að ekki er það síður í beinar þarfir framleiðslunnar að veita vatni á mýri.
Háttv. 2. þm. Eyf. (E. Árna.) komst í ræðu sinni dálítið út frá efninu. Hann var svo gramur yfir því, að hæstv. landsstjórn sætti ákúrum fyrir það, sem hún gerði eða gerði ekki. Það er nú engin ný bóla, að stjórn hjer eða annarsstaðar megi taka aðfinningum, eða aðrir þeir menn, er sig gefa við almennum málum. En það er svo skrítið, að stjórnin sjálf er ekki að tala um þetta, heldur tekur því svo ósköp rólega, eins og þeir menn aðrir, sem eru dálítið veraldarvanir. Það er eins um hana og sniglana — án þess þó að jeg ætli mjer að líkja hæstv. stjórn við þau dýr — að hún sýnist hafa einhver þreifihorn hjer í deildinni, sem altaf kveinka sjer og kippast við, og það þótt jafnvel ekkert sje að stjórninni veist. Það er auðvitað svo um þessa stjórn sem aðrar, að hún sætir ákúrum fyrir það, sem hún gerir, og þeim sumum rjettmætum, en sumum væntanlega ekki. Svo er um allar stjórnir í þingfrjálsum löndum.
En svo tók jeg eftir því, að háttv. 2. þm. Eyf. (E. Árna.) gaf það í skyn í upphafi ræðu sinnar, að ef brtt. sínar yrðu ekki samþ., mundi hann veita sitt lið til þess að fella stjórnarfrv. Þar höggur sá er hlífa skyldi, því að fátt er hægt að gera einni stjórn meir til miska en að myrða þau mál, er hún ber fyrir brjósti og telur sitt hjartans mál. Jeg tel það ekki eins mikla mótgerð að segja stjórn til syndanna sem hitt, að fella mál, sem stjórnin telur þjóðþrifamál. Jeg veit nú ekki, hvað hinn háttv. þm. (E. Árna.) kann að gera, en vænti nú þess, að þar sem jeg hefi bent honum á þetta, þá bæti hann nú ráð sitt og samþ. stjórnarfrv., enda þótt till. hans verði feldar.