04.07.1918
Efri deild: 57. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 561 í B-deild Alþingistíðinda. (402)

20. mál, eftirlaun handa Birni bankastjóra Kristjánssyni

Frsm. (Jóhannes Jóhannesson):

Í dagskrá háttv. þm. Ak. (M. K.) liggur að mínu áliti bending til landsstjórnarinnar um, að bankastjórinn skuli láta af störfum sínum nú þegar, og hlýt jeg því að greiða atkvæði á móti henni. Þykir mjer ólíklegt, að háttv. deild leggi samþykki sitt á nokkrar slíkar bendingar.