04.07.1918
Efri deild: 57. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 564 í B-deild Alþingistíðinda. (407)

20. mál, eftirlaun handa Birni bankastjóra Kristjánssyni

Frsm. (Jóhannes Jóhannesson):

Jeg vil vekja athygli deildarinnar á því, að það er alger óþarfi að fjölyrða um þetta mál. Báðar þingdeildirnar eru búnar að samþ. að veita bankastjóranum 4.000 kr. eftirlaun. Ágreiningurinn er að eins um formið. Í mínum augum er formið ekki það aðalatriði, að ástæða sje til, vegna þess eins, að hrekja málið milli deildanna. Jeg sje ekki, til hvers alt þetta þref og þjark er og allar þessar till. Mjer virðist sjálfsagt að afgreiða málið nú þegar, umræðulítið, þegar allir eru sammála um merg málsins.