04.07.1918
Efri deild: 57. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 565 í B-deild Alþingistíðinda. (410)

20. mál, eftirlaun handa Birni bankastjóra Kristjánssyni

Magnús Torfason:

Jeg get ekki skilið, hvers vegna ekki má nefna „sjúkdóm“ í sambandi við þetta mál, því að það er öllum vitanlegt, að heilsuleysi er eina ástæða Björns bankastjóra Kristjánssonar til að fara þess á leit við þingið, að hann verði settur á eftirlaun.

Háttv. þm. Seyðf. (Jóh. Jóh.) hjelt því fram, að skoðanamunur væri að eins um formsatriði, en skoðanamunurinn er meiri en það. Það bera bæði nál. með sjer, og vísa jeg til þeirra. En það er víst um það, að meiri hl. er samþykkari sjálfum sjer en minni hl., enda var öll nefndin með því, að lögin gengju í gildi 1. júlí, og brtt. fara í sömu átt.

Misskilningur sá, sem orðið hefir milli deildanna, stafar einmitt frá bankastjóranum sjálfum. Þingið átti ekki að fá að ráða neinu, heldur að eins samþ. óbreytt það, sem hann vildi vera láta, svo að ef hjer er um skertan þingvilja að ræða, þá kemur það þar fram, í sambandi við bankastjórann, en ekki annarsstaðar.

Um rökstuddu dagskrárnar vil jeg geta þess, að jeg mun geta greitt dagskrá háttv. þm. Ak. (M. K.) atkv. mitt, því að jeg lít svo á, að hún sje fram kornin til þess að komast hjá deilu og sundurþykki.

Aftur á móti lít jeg svo á, að dagskrá háttv. þm. Snæf. (H. St.) mundi verða til þess að vekja sömu deiluna aftur á næsta þingi, og mun því alls ekki ljá henni atkv. mitt.