17.05.1918
Neðri deild: 25. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 206 í B-deild Alþingistíðinda. (45)
4. mál, almenn dýrtíðarhjálp
Björn R. Stefánsson:
Það er nú sitthvað búið að finna að brtt. á þgskj. 136. En háttv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) hefir svarað því flestu, svo að jeg get verið stuttorður.
En það var sjerstaklega 1. þm. Húnv. (Þór. J.), sem jeg vildi minnast á. Mjer þótti hann leggja miður góðgjarnlegan skilning í þau orð mín, að sama væri, hvort landssjóður ljeti peningana að láni eða gjöf.
Aðaláhersluna lagði jeg á það, að landssjóði væri best að þurfa sem minst að láta af hendi, meðan fjárhagurinn er svo þröngur, og jeg held fast við það, að hann megi ekki nú þegar tefla svo á það ítrasta með lánstraust sitt, að hann verði einkis megnugur, ef enn meir kreppir að almenningi. En við því verðum við að vera búnir, að það geti komið fyrir. Enn þá er ekki fyrirsjáanlegt, hve nær þessum mikla ófriði lýkur og þeirri dýrtíð og atvinnuspjöllum, sem af honum stafur.
Þá sagði sami hv. þm. (Þór. J.), að styrkurinn væri hverfandi lítill, mundi naumast endast lengur til lífsviðurhalds en í tvær vikur.
Háttv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) hefir þegar leiðrjett þann misskilning, en jeg vil þó leyfa mjer að skýra þetta dálítið nánar.
Setjum svo, að styrk þessum sje varið til þess að styrkja þá, sem í neyð eru komnir, og gerum ráð fyrir, að það sje tíundi hver maður; frekari neyð gerir maður ekki að svo stöddu ráð fyrir.
Nú er til þess ætlast, að styrkurinn sje 25 krónur á hvern mann, eftir brtt. okkar. Þá verða það 250 krónur, sem sá tíundi hver fær, sem í neyð ratar. Sex manna fjölskylda mundi þá fá 1.500 krónur, og getur það alls ekki talist svo hverfandi lítil hjálp, eins og háttv. þm. (Þór. J.) hjelt fram.
Þótt svo færi, að hver fimti maðar yrði hjálpar þurfi, þá væru þó 750 krónur á 6 manna heimili að meðaltali. Meira held jeg að við getum tæplega í bili, enda get jeg ekki fallist á, að það sje mjög óveruleg hjálp.
Þá tók sami hv. þm. (Þór. J.) það fram, að að eins hin vel stæðu sveitarfjelög mundu fá styrk þennan, því að hin gætu ekki fengið lán. Um það atriði get jeg vísað til orða minna áður, þar sem jeg benti á stórgróðamennina sem tekjulind fyrir sveitarfjelögin.
Jeg benti á það, að jeg ætlaðist til þess, að mikið af þeim styrk, sem ætlaður væri til þess að hjálpa þeim, sem verst væru staddir, væri fenginn með auknum útsvörum á gróðamennina. Þeir væru flestir í bæjum og þorpum, en þar væru líka mestar líkur til þess, að þyrfti að veita almenna hjálp. Jeg geng því alls ekki út frá því, að sveitarfjelögin þyrftu að sækja alt þetta fje í bankana, — í sumum tilfellum kann ske mjög lítið eða ekkert.
Sami hv. þm. (Þór.J.) vill jafnvel ganga svo langt, að taka allan gróða af þeim, sem grætt hafa á þessum árum, og þegar búið er að gera það, minkar það, sem þarf að taka frá bönkunum. Sumir eru nú að vísu ekki trúaðir á það, að bankarnir mundu nokkuð lána, og efast enda um, að þeir geti lánað mikið, því að þótt þeir hati mikið fje í veltunni, þá hafa þeir að öllum líkindum fjeð gangandi eða fast í ýmsum atvinnufyrirtækjum. En ef veruleg neyð kemur, sem búast má við, ef atvinnuvegir leggjast í kalda kol býst jeg við, að peningar safnist fyrir hjá bönkunum og að þeir vilji þá heldur láta þá til sveitarfjelaganna heldur en að liggja með þá vaxtalausa, þar sem jeg ekki get talið hættulegt að lána þeim sveitarfjelögum, nema í þeim fáu og einstöku tilfellum, sem háttv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) nefndi, að um fullkomna auðn væri að ræða.
Háttv. 1. þm. Reykv. (J. B.) hneykslaðist á því, sem jeg sagði í fyrri ræðu minni um það, að fyrsta skylda okkar væri að forða landssjóði frá útgjöldum, þar sem fyrsta skylda hans væri einmitt að bjarga sveitarfjelögunum; en jeg held, að jeg hafi tekið það fram, að það yrði að fara eins sparlega með getu hans og unt væri.
Þá furðaði mig á því, að hann skyldi fara að bera blak af stórgróðamönnunum, því að hann benti á, að þeir hefðu í fleiri horn að líta en að borga til bæjanna; jeg átti satt að segja ekki von á því, að þeir — stórgróðamennirnir — fengju málsvara úr þeirri átt.
Um till. háttv. 2. þm. Eyf. (E. Árna.) er það að segja, að þar sem hann vill hafa ársfrest á borguninni, þá gerir það hana óhæfa til þess, að jeg geti fylgt henni. Ef það hefðu að eins verið 3— 4 mánuðir, þá hefði það verið annað mál, en landssjóður hefir sett svo mikið fast, að hann getur víst ekki meira.
Um till. háttv. 1. þm. Árn. (S. S.) er það að segja, að heyskapurinn gerir það ómögulegt, að jeg geti fylgt henni. Jeg vil ekki gera ráð fyrir því, að til atvinnuskorts komi á þeim tíma, sem hægt er að stunda heyskap, því að þá væri sú neyð í landi, sem landssjóði væri um megn að bæta úr.