17.05.1918
Neðri deild: 25. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 209 í B-deild Alþingistíðinda. (46)
4. mál, almenn dýrtíðarhjálp
Pjetur Þórðarson:
Jeg þykist hafa ástæðu til þess, mörgum öðrum fremur, að gera grein fyrir atkvæði mínu, þótt ekki væri nema af þeirri ástæðu, að segja mætti, að við 2. umr. væri það atkvæði mitt, sem olli því, að frumv. gekk þá fram, af því að jeg var sá eini af þeim, sem greiddu atkvæði með brtt. háttv. meiri hl. bjargráðanefndar, en að þeim föllnum með stjórnarfrv. Jeg vona, að frv. fái nú meira fylgi, jafnvel hvernig sem fer um þær brtt., sem nú liggja fyrir.
Ástæðan til þess, að jeg tók heldur það ráð að greiða atkvæði með frv., var sú, að jeg vildi ekki missa 8. gr. Mjer fanst svo vera komið þessu máli í meðferð þessarar háttv. deildar, að virðing hennar mundi að litlu vaxa við það að láta málið niður falla við svo búið, og reyndar hvernig sem með það verður farið, en þó sjerstaklega af því, að það var haldið svo á þessu máli í fyrra hjer á þinginu, að samþykt voru lög þau, sem nú gilda, og öllum virðist koma saman um að ekki geti orðið framkvæmd samkvæmt tilgangi sínum. En sem sagt ætla jeg mjer ekki að fara að ræða brtt. þær, sem hjer eru fyrir hendi, því að það er orðið nógu þvælt mál, mundi ekki bæta úr skák, þótt jeg gerði það, heldur mun jeg sýna það við atkvgr., hvernig jeg lít á þær En úr því að lánaheimildir og nauðsynleg takmörkun þeirra gat nú eigi komist að, til hjálpar í væntanlegri neyð, tek jeg heldur þann kostinn, þótt hann sje ekki góður, að greiða atkvæði með frumvarpinu, svo fremi að því verði ekki breytt mjög mikið, áður en það kemst út úr þessari háttv. deild, heldur en að verða þess valdandi, að 8. gr. fái ekki að standa.