03.05.1918
Neðri deild: 15. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 592 í B-deild Alþingistíðinda. (464)
28. mál, fé úr landssjóði til viðhalds Ölfusárbrúnni
Einar Jónsson:
Jeg er háttv. flm. (S. S) að öllu leyti samþykkur í þessu máli og álít ekki nema sjálfsagt, að landssjóður taki að sjer viðhaldið á Ölfusárbrúnni. Jeg er því líka samþykkur, að rjett sje að vísa málinu til nefndar. Jeg hafði nú hugsað mjer það eðlilegast, að samgöngumálanefnd fengi málið til meðferðar, en jeg skal ekki gera það að neinu kappsmáli, hvort það fer í þá nefnd eða fjárveitinganefnd, því að það skiftir ekki svo miklu máli. En jeg vil minna þá háttv. nefnd, sem málið fær til meðferðar, á það, að búast má við, að bráðlega þurfi að kosta miklu til aðgerðar á öðru samskonar mannvirki, sem er brúin á Þjórsá. Og þegar að því rekur, að sýslunefnd Rangvellinga fer fram á, að landssjóður taki að sjer viðhaldið á Þjórsárbrú, þá vona jeg, að Alþingi álíti sjálfsagt að veita það, og ætti helst að samþykkja þegar í stað, að landið sæi um viðhaldið á báðum þessum brúm. Jeg vona að minsta kosti, að Alþingi verði æfinlega svo sanngjarnt að taka að sjer þetta mál og leiða til farsællegra lykta.
Jeg gæti nú búist við, að sumir óttist, að fleiri komi á eftir og biðji um það sama. En það er ástæðulitið að óttast slíkt, þar sem þetta eru langstærstu brýrnar og á fjölförnustu leiðinni. Svo tel jeg líka víst, ef þetta frv. verður samþykt og þær 10.000 kr. veittar, sem farið er fram á, að þá muni Árnesingar verða ánægðir fyrst um sinn, en að sjálfsögðu fara fram á viðhaldsstyrk síðar, í hvert sinn sem þess væri þörf. Virðist mjer því, að einfaldast og sanngjarnast væri, að landið tæki beint að sjer viðhaldið nú þegar, því að hitt er víst, að sýslufjelögunum er það langt um megn með þeim tekju stofnum, sem þau hafa.
Jeg vil biðja þá háttv. nefnd, sem með málið fer, að athuga, hvort þetta sje ekki tiltækilegt.
Jeg býst við, að það yfirlit yfir útgjöld Árnessýslu, sem háttv. flm. (S. S.) gaf háttv. deild, sje alveg rjett. Samskonar yfirlit gæti jeg gefið yfir útgjöld Rangárvallasýslu, en skal ekki þreyta menn á tölum í þetta sinn.