03.05.1918
Neðri deild: 15. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 593 í B-deild Alþingistíðinda. (465)

28. mál, fé úr landssjóði til viðhalds Ölfusárbrúnni

Benedikt Sveinsson:

Jeg skal ekki lengja umræðurnar, en jeg vil vísa málinu til samgöngumálanefndar, því að jeg býst við, að hjer geti orðið um breytingu á vegalögunum að ræða, þar sem þau gera ráð fyrir, að hlutaðeigandi sýslusjóðir eigi að kosta viðhald á Ölfusárbrú og Þjórsárbrú. Það stendur samgöngumálanefnd næst að koma fram með till. um breytingar, ef gerðar verða, á lögunum.