20.06.1918
Neðri deild: 52. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 602 í B-deild Alþingistíðinda. (476)

28. mál, fé úr landssjóði til viðhalds Ölfusárbrúnni

Pjetur Þórðarson:

Það er að vísu rjett hjá háttv. þm. Borgf. (P. O.), að það er ekki sanngjarnt að taka einstök atriði út úr öðrum hliðstæðum í viðhaldi á flutningabrautum eða brúm, til þess að kasta því sjerstaklega á landssjóðs herðar. En þrátt fyrir það þótt háttv. framsm. (M. P.) endurtæki nú það, sem hann sagði við fyrri umr., að fjárveitinganefnd hefði alls ekki viljað ganga inn á, eða með þessari tillögu gengið inn á, þá braut, að ljetta öllu viðhaldinu af sýslufjelögunum, þá álít jeg, að nefndin hafi nú samt gengið inn á þessa braut, þó að skamt sje farið, en taki jafnframt tillit til sjerstakra ástæðna, að því er þetta snertir. Og jeg fyrir mitt leyti samþykki þetta með fúsi geði, af því að jeg álít það svo sanngjarnt, að hjer sje hlaupið undir baggann. Og einhvern tíma verður að byrja. Því að hjá þessu sýslufjelagi mun þörfin mjög mikil. En það er ekki nóg ástæða, eins og háttv. framsm. (M. P.) tók fram, að taka sjerstakt tillit til þess, að hjer er um viðhald elstu brúarinnar að ræða. Það er ekki nóg ástæða út af fyrir sig, þótt hún sje rjettmæt. En hitt hefir miklu meira að segja, hvar viðhaldið hvílir svo þungt á, að sýslufjelögin geta ekki undir risið, eða vegaþörfin slík, að ekki verður fullnægt, þar sem aftur á móti má fullnægja henni með hægu móti í öðrum sýslum og af eigin ramleik.

Verð jeg því að vera á annari skoðun en háttv. þm Borgf. (P. O ). Tel jeg sanngjarnt að byrja á þessu og rjett að fara inn á þessa braut. Og inn á hana er gengið með þessu frv., hversu svo sem háttv. framsm. (M. P.) vill krossa sig og nefndina fyrir, að svo sje þó ekki.