06.05.1918
Neðri deild: 17. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 610 í B-deild Alþingistíðinda. (490)

31. mál, hafsaga í Reykjavík

Flm. (Jörundur Brynjólfsson):

Það er fjarri því, að jeg hafi nokkuð á móti, að málinu verði vísað til nefndar, en mjer virðist það eiga heima í sjávarútvegsnefnd. Jeg heyrði ekki almennilega, hvort háttv. 2. þm. Árn. (E. A.) gerði það að till. sinni, að málinu yrði vísað til samgöngumálanefndar.