13.05.1918
Neðri deild: 21. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 622 í B-deild Alþingistíðinda. (514)

32. mál, fræðsla barna

Bjarni Jónsson:

Jeg vildi að eins lýsa yfir því, að þó að þessar umbætur á launum kennara sjeu kann ske að mörgu leyti lítilfjörlegar, þá er það ekki þm. að kenna að þessu sinni, þar sem ekki er undirbúinn grundvöllur sá, sem gera átti ný launalög á. Þess vegna er það, að jeg hefi heldur fylgt fram því litla, sem hjer er boðið, heldur en alls engu, en að öðru leyti, ef grundvöllurinn hefði verið rannsakaður að öllu, þá mundi jeg sjálfsagt, eins og að undanförnu, vera því fylgjandi, að þeim mönnum væri borgað sæmilega.