13.05.1918
Neðri deild: 21. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 622 í B-deild Alþingistíðinda. (515)

32. mál, fræðsla barna

Frsm. (Jörundur Brynjólfsson):

Jeg get lýst yfir því, að ef stjórnarfrv. hefði fengið aðrar undirtektir í þessari deild en það fjekk þegar það var borið hjer fram, mundi jeg hafa gengið lengra í breytingum til bóta fyrir kennarana. En mjer virtist sú undiralda, er fram kom hjer í deildinni, svo sterk, að engin von væri um, að miklar umbætur næðu fram að ganga, þar sem margir risu upp við 1. umr. og töldu litla ástæðu til að gera bætur á launakjörum kennaranna. Jeg skal viðurkenna, að sitthvað mælir á móti því að fara að breyta launakjörum barnakennara nú til frambúðar, einkum af því, að verðmæti peninga er svo breytilegt, og sömuleiðis af því, að ekki er víst, að um fræðslu verði svo mikið, sökum dýrtíðar og annara erfiðleika, uns ófriðnum lýkur. En vitanlegt er það, að í kaupstöðum verða skólar að starfa, svo framarlega sem tök verða á því að hafa nokkuð í ofninn, en þessar bráðabirgðabætur eða bráðabirgðakák, sem ekki er nú annað en kák, sem mentamálanefndin ber fram, nær varla til kennara, sem starfa í stærstu kauptúnum landsins. En eins og drepið er á í greinargerðinni fyrir frv., get jeg fyrir mitt leyti fallist á, að þessi leið sje farin, sem mentamálanefndin leggur til, vegna þeirra kringumstæðna, sem nú eru, en þó verð jeg að segja það, að frá mínu sjónarmiði má það sín allra mest um það, að jeg hefi ekki viljað stiga feti framar í þessu máli, að ekki er sýnt, hve erfitt þjóðin á með að bjargast yfir ófriðarárin, og í þessu efni verður þá svo að vera, að hver verður að gera sig ánægðan með sem allra minst og sætta sig við það, þó að kjörin verði ekki sem ákjósanlegust.

Jeg get ekki neitað því, að jeg varð dálítið undrandi þegar jeg heyrði þau ummæli sumra háttv. þm., að laun kennara yfirleitt væru hvergi nærri eins lág og orð væri á gert, þegar það er öllum vitanlegt, að það er nærri því sama, við hver önnur störf menn fást, þá fá þeir mikið betri borgun fyrir þau.

Það er annað, sem líka er mjög einkennilegt og leiðinlegt við fræðslustarfið í landinu, og það er, að víða er litið svo á, að launin, sem kennarar fá, sjeu nægileg fyrir ekki meira starf en það, sem þeir hafa með höndum.

En nú er það alkunna, og jeg veit, að hinir góðu bændur, sem sitja hjer á þinginu, játa það með mjer, að allir búendur leggja mikla áherslu á að fá góða menn til þess að hirða gripi sína. Sama er að segja um útgerðarmennina, að þeir sækjast eftir því að fá góða fiskimenn á skip sín. En þegar kemur til fræðslustarfsins, þá lítur út fyrir, að öllum standi á sama um, hverjum sje fyrir því trúað, og virðist eingöngu svo, að spurt sje um það eitt, hver fáist fyrir lægst kaupið.

Það getur nú raunar verið, að menn kjósi fremur góða menn sem kennara en að leggja nokkuð í sölurnar til þess að fá þá; það er talið úr á allan hátt, eins og það skifti miklu minna máli, hverjum sje falið að móta hug og stefnu hinnar upprennandi æsku, heldur en að hugsa um gripi og draga þorsk.

En ef vjer lítum á fræðslustarfið, þá getur hver maður sjeð, að því betur sem því er komið fyrir, þess meiri framfara má maður vænta, og því betur eru þjóðirnar undirbúnar að taka á móti þeim örðugleikum, sem að steðja. Og þegar menn íhuga aðstöðu þjóðanna í hinni ægilegu styrjöld, sem nú geisar, þá hljóta menn að viðurkenna, hvílíkur máttur fylgir auðlegð menningarinnar. Nægir í því sambandi að benda á eina helstu stórþjóðina, er nú á í styrjöld og best hefir haldið velli.

Annars vil jeg lýsa yfir því, að jeg mun ekki einungis greiða þessu frv. atkvæði mitt af því, að það sje til bráðabirgða, eins og háttv. þm. Dala. (B. J.) tók fram, heldur geri jeg það af því, að jeg hafði ekki von um, að meiri bætur væru fáanlegar að þessu sinni.