13.05.1918
Neðri deild: 21. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 627 í B-deild Alþingistíðinda. (518)
32. mál, fræðsla barna
Frsm. (Jörundur Brynjólfsson):
Hæstv. forsætisráðherra gat þess, að nefndin hefði getað komið með betri bætur á launum kennara heldur en raun hefir á orðið. Jeg veit nú ekki með vissu, hversu langt sumir nefndarmenn hefðu viljað fara í slíkum umbótum, en það er mjer kunnugt um, að hefði verið gengið lengra, þá hefði nefndin ekki orðið sammála.
Það var líka vitanlegt af þeim undirtektum, sem stjórnarfrv. fjekk hjer í háttv. deild, að það mundi aldrei verða látið ná fram að ganga.
Það mundi nú einhver segja, að betra hefði verið að falla með rjettu máli heldur en að bera fram eitthvert kák, og þá er því til að svara, að svo getur staðið á, að lítið sje betra en ekki neitt. Og með þetta fyrir augum verð jeg fylgjandi þessum málamyndabótum.
Um þetta atriði hefir annars verið alt of hljótt, og því hefir verið gefinn alt of lítill gaumur, og jeg get ekki annað en látið í ljós undrun mína yfir því, að fræðslumálastjóri skuli ekki fyrir löngu hafa komið fram með tillögur um endurbætur á launum og kjörum kennara, og svo á fræðslulögunum, því að það verður maður að játa, að þeim er í mörgu mjög svo ábótavant.
Mig undraði að heyra háttv. þm. N.-Ísf. (S. St.) lýsa yfir því, að hann mundi enn síður verða með þessari frumvarpsnefnu heldur en frv. stjórnarinnar, því að það virðist ekki annað en að honum finnist þetta frv. ganga of skamt. Hvers vegna segir hann ekki, hvaða meðalveg hann vill fara. (S. St.: Engan meðalveg).
Þá drap háttv. þm. (S. St.) á, að ósýnt mundi vera, hvort nokkurt fræðslustarf yrði í landinu í vetur. Það má vel vera, að nokkur vafi leiki á því til sveita, en allar líkur eru til, að skólar í kaupstöðum starfi eitthvað. En þótt nú svo fari, að skólum verði lokað í haust, þá mælir það alls ekki á móti þessari launahækkun, því að kennararnir mundu þá alls ekki njóta hennar. Því að jeg að kennarar sjeu yfirleitt þannig ráðnir, að auðvelt sje að losna við þá, án þess að láta sveitarsjóði blæða.
Jeg geng út frá því, að því fyrirmæli fræðslulaganna sje að jafnaði ekki fylgt, að ráða kennara með föstum samningi, sem ekki verði sagt upp nema með hæfilegum uppsagnarfresti.
Háttv. þm. N.-Ísf. (S. St.) drap á það, að ef þetta frv. yrði samþ, þá gerði það að eins fræðsluhjeruðunum erfiðara fyrir að starfa, en kennarana munaði lítið um það. Mjer þykir þetta kynleg skoðun. Gjaldendurnir í hverju hjeraði skifta tugum eða hundruðum, og í einstöku fræðsluhjeruðum jafnvel þúsundum, en kennarar ekki nema einn eða þá sárafáir. Ef hvern gjaldanda munar um þennan útgjaldaauka, þá ætti einn eða fáa kennara að muna töluvert um tekjuaukann. Það er ekki gott að koma þessu saman. Annaðhvort munar gjaldendurna ekki lifandi vitund um þennan launaauka, og þá kennarana má ske ekki heldur, eða hann verður til töluverðra bóta fyrir kennarana.
Viðvíkjandi því, að ekki fáist nýtari menn til kenslunnar þó að þetta frv. verði að lögum, þá má það vel vera. Umbæturnar, sem það fer fram á, ná ef til vill of skamt til þess. En það vita menn, að margur kennari getur reynst vel, þegar hann fær að njóta sín við starfið, þó að litlu gagni verði á meðan hann verður að hafa það í hjáverkum. Þó að manndygðir og mannkostir verði ekki keyptir fyrir fje, þá er hitt víst, að enginn getur staðið vel í stöðu sinni, nema hann hafi ráð á að lifa því lífi, sem staðan útheimtir. Jeg tel það undrum sæta, hve nýtir menn hafa fengist í kennarastöður. En hitt er líka alkunnugt, að þeir kennarar eru ekki margir, sem endast í stöðunni til lengdar. Menn hafa skotið sjer að kennarastarfinu 2, 3 eða 4 ár, en þá horfið frá því og tekið aðra arðmeiri atvinnu.
Jeg get ekki tekið undir það, að fræðslunefndir hafi altaf lagt áherslu á það að fá sem nýtasta menn til kenslustarfans, þegar völ var á öðrum ódýrari. Jeg veit jafnvel dæmi til þess úr einu fræðsluhjeraði, að tekinn var sveitarlimur til þess að kenna, án þess að tillit væri tekið til þess, hvort hann hefði nokkra hæfileika í þá átt eða ekki, bara til þess að ljetta af sveitinni þeirri byrði, að kosta kennarann.