13.05.1918
Neðri deild: 21. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 646 í B-deild Alþingistíðinda. (527)
32. mál, fræðsla barna
Þorsteinn Jónsson:
Jeg tók það fram við 1 umr. þessa máls, að jeg teldi frv. það, sem kom frá hv. mentamálanefnd, og bætur þær, er það fjallar um, mjög lítils virði. Víðast um land eða að minsta kosti þar, sem jeg þekki til, hafa kennarar hærri laun en lágmarkslaun þau, sem ákveðin eru í fræðslulögunum. Að minsta kosti er svo um flesta kennara við fastaskóla. Mörgum farkennurum mun að vísu ekki borguð hærri laun en þau, sem lágmark laganna leyfir. En sumir þeirra hafa þó skárri laun en ákveðin eru samkvæmt lágmarkstaxta frv. þess, sem hjer er til umr.
Það er því alls ekki rjett, að fræðslunefndir eða skólanefndir hafi ekki víða reynt til þess að útvega góða kennara, en ef það hefir oft ekki tekist, er það vegna þess, að starfið hefir yfirleitt verið illa launað, og því ekki um nóga góða kennara að velja. Flestir af þeim,sem hafa ætlað að gera barnakenslu að aðalstarfi sínu, hafa komist að þeirri niðurstöðu, að þeir gátu ekki lifað af því starfi. Hafa þeir því orðið að leita sjer einhvers annars starfs, því að þótt það sje gott og blessað, eins og háttv. 1. þm. Húnv. (Þór. J.) tók fram, að aðalmarkmið margra kennara sje að vinna einungis af því, að þeir geri svo mikið gagn, þá er það þó svo, að enginn getur unnið lengi að því starfi, sem hann getur ekki lifað af.
Háttv. þm. Barð. (H. K.) tók það fram, að þar sem hann þekti til væri mjög sótt eftir farkennarastörfum. Skal jeg ekki rengja, að svo geti verið, en hygg það koma af því, að þeir, sem sækja um þau störf, sjeu ungir menn, sumir nýkomnir frá skólum, og hafa ekki getað fengið neina fasta kennarastöðu eða einhverja aðra stöðu í svip. En að menn sækist eftir slíkum starfa til þess að gera hann að lífsstarfi sínu, því trúi jeg ekki. (H. K.: Það sagði jeg ekki heldur).
Þá vildi jeg svara háttv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) nokkrum orðum. Jeg hefi heyrt það á honum áður, að fræðslulögin frá 1907 hafi gert ógagn, vegna þess að þau hafi lagt heimilisfræðsluna fyrir óðul. Jeg er hjer á annari skoðun, því að þegar fræðslulögin gengu í gildi, var búið að taka upp líkt fræðslufyrirkomulag í sveitum og lögin sögðu fyrir; það var búið að taka upp farkensluna fyrir löngu. Hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) álítur, að heimiliskenslan hafi verið ágæt í fýrri daga, en það verð jeg bera miklar brigður á, að svo hafi verið, nema þá á einstökum heimilum. Á einstökum heimilum hefir heimafræðsla verið í góðu lagi og er enn, en sum heimili hafa rækt kensluna illa, enda alls ekki getað rækt hana, vegna þekkingarskorts og tímaleysis.
Nú er svo komið, eins og menn vita, að fólki fækkar í sveitum og heimilisfeður hafa svo miklum störfum að gegna, að þeir geta ver sint því en áður að kenna börnum sínum, þótt þeir væru færir til þess. Þess vegna held jeg, þó að lög yrðu búin til um það hjer á þingi, að heimilin tækju aftur að sjer fræðsluna, að heimilin reyndu að fá sjer kennara til að kenna börnunum, eins og nú tíðkast.
Fræðslulögin fá 1907 mæla svo fyrir, að heimilin eigi að kenna börnunum að lesa og skrifa, svo að þau sjeu tæk í skóla þegar þau eru 10 ára, en mjer er fullkunnugt um það, að víða er misbrestur á þessu. (B. J.: En það last). Já, en það er satt, og það er ekki til neins að vera að bera það lof á menn, sem ekki er satt. Það getur að vísu látið vel í eyrum kjósenda sumra þingmanna, en það er ekki til neins að loka augunum fyrir því, sem er. (B. J.: Ef þjóðin er orðin svona, þá hafa skólarnir gert hana það). Þjóðin hefir að vísu breyst, og skólarnir eiga sinn þátt í þeirri breytingu. Enda hefir nú breyting á menningarlegum sviðum orðið til batnaðar.
Háttv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) tók það fram, að heimilisfræðslan ætti eingöngu að styðjast við eftirlitskenslu, Eftir því, sem þeir menn segja, er til eftirlitskenslu hafa þekt, þá hefir hún alstaðar reynst mjög illa. Víða hefir reynslan orðið sú um farskólana, að sveitirnar hafa ekki sjeð sjer fært að halda þeim áfram. Einstök heimili hafa orðið að taka skólana að sjer, og það hefir að lokum víða farið svo, að heimilin hafa ekki fengist til þess.
Til þess að koma góðu skipulagi á barnafræðslu í sveitum þarf að byggja heimavistarskóla. Skólarnir ættu að starfa í 9 mánuði, en hvert barn ætti ekki að þurfa að vera nema þrjá mánuði á ári í skólanum. Einn skóli gæti verið fyrir 60 börn. Væri þeim skift í þrjár deildir og hver deild væri þrjá mánuði í skólanum, þá gæti einn kennari kent við slíkan skóla. Með þessu væri svo um búið, að skólunum fækkaði og hægt yrði að launa kennarana betur.
En þó að jeg álíti, að þetta frv. mentamálanefndarinnar sje kák, þar sem t. d. er verið að hækka mest laun kennara, sem ekki eru til hjer á landi, mun jeg þó greiða því atkvæði, því að það bætir ofurlítið kjör þeirra kennara, er hafa allra minst laun.