18.06.1918
Efri deild: 46. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 656 í B-deild Alþingistíðinda. (535)
32. mál, fræðsla barna
Forsætisráðherra (J. M.):
Hv. frms. (K. D.) vildi skilja 1. gr. svo, að þar sem búið væri að hækka laun kennaranna áður en lögin ganga í gildi, þar þyrfti landssjóður ekki að greiða 2/3 hluta launanna samkvæmt brtt. nefndarinnar. Jeg held, að þessi skilningur geti ekki staðist. Jeg held, að ekki sje unt að skilja þetta öðruvísi en að landssjóður eigi að greiða 2/3 hluta af þeirri launahækkun, er kennararnir hafa fengið fram yfir það, er fræðslulögin ákveða, og það er efalaust hagkvæmast í framkvæmdinni, enda hart, að sveitarfjelög, er hafa hækkað laun kennaranna, verði ver úti en hin, sem ekki hafa hækkað launin. Ef það kemur eigi berlega fram, að háttv. deild skilji þetta öðruvísi, þá geng jeg að því sem vísu, að þessi skilningur sje rjettur, því að það er nauðsynlegt fyrir stjórnina að fá ljósa grein fyrir því, hvernig beri að skilja. Jeg hefi því enga trú á því, að útgjöld landssjóðs af brtt. verði minni en 40 þús. kr., enda finst mjer það eiga ekki að hafa áhrif á atkvæði háttv. þm., þótt útgjöldin gætu orðið 5.000 kr. minni; það er ekki svo stór upphæð í þessu sambandi.