18.06.1918
Efri deild: 46. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 657 í B-deild Alþingistíðinda. (536)

32. mál, fræðsla barna

Frsm. (Kristinn Daníelsson):

Jeg hefi ekki á móti því, þó að brtt. nefndarinnar yrði skilin svo, sem hæstv. forsætisráðherra gerði. En jeg er jafnviss og hann um það, að sá skilningur sje rjettur.

Kaupstaðirnir og fræðsluhjeruð þau, sem hækkað hafa laun kennaranna, hafa ekki verið skylduð til þess, og þar sem tekið er fram í 2. gr. frv., að landssjóðsstyrkurinn hækki að tiltölu við það, sem fræðslukostnaður fræðsluhjeraðanna eykst, þá sje jeg ekki, að landssjóð beri skylda til þess að greiða 2/3 af þeirri hækkun, sem þannig er orðin á kaupinu, því að í 1. gr. segir, að fyrir „18 kr.“ komi „30 kr.“ og fyrir „12 kr.“ komi „20 kr.“ o. s. frv., en þar sem búið er að hækka launin, fer, skilst mjer, engin hækkun fram eftir þessari gr„ og getur þá ekki verið heimting á greiðslu úr landssjóði eftir brtt. nefndarinnar. Annars væri þetta veikefni fyrir lögfræðinga að skera úr eða stjórnina að úrskurða, er til kæmi.

Aðalatriðið er, að kjör kennaranna sjeu að nokkru bætt; það tel jeg sjálfsagt og vil styðja.