25.05.1918
Neðri deild: 31. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 662 í B-deild Alþingistíðinda. (551)

41. mál, skemmtanaskattur

Jörundur Brynjólfsson:

Jeg get nú verið nefndinni þakklátur fyrir það, hvernig hún hefir tekið þessu frv. Brtt. hennar eru ekki stórvægilegar í sjálfu sjer og raska ekki þeim grundvelli, sem það er bygt á.

Háttv. frsm. (E. A.) talaði um það, að frv. setti skattinn of háan, svo að hætta gæti stafað af fyrir þann, sem heldur sýningum uppi. En jeg ætlaðist til þess, að treysta mætti sveitar- og bæjarstjórnum til þess að gæta hófs í því efni og leggja ekki meiri skatt á en vissa er fyrir að fyrirtækið gæti borið. En jeg hefi ekkert að athuga við það, að skatturinn sje miðaður við aðgöngueyri.

Jeg hafði upphaflega ætlað mjer að láta skattinn ná til skemtana yfirleitt. En jeg heyrði á ýmsum þingmönnum, að þeir óttuðust, að sveitar- og bæjarstjórnir mundu skatta um of saklausar skemtanir, eða jafnvel skemtanir, sem væru til nytsemda, svo að jeg óttaðist, að það mundi draga úr fylgi frv., ef svo langt væri gengið. Þessi brtt. er því í áttina til þess, sem jeg ætlaði mjer upphaflega, og er jeg fyrir mitt leyti alls ekki mótfallinn henni.

Eins og háttv. þm. Stranda. (M. P.) tel jeg vafasamt, hvort rjett sje að lögin nái til leiksýninga Leikfjelags Reykjavíkur. Sá fjelagsskapur á erfitt uppdráttar, og þeir, sem að sýningunum vinna, verða að mestu leyti að gera það í frítímum og svefntíma sínum. Þó að ætlast sje til þess, að þeir, sem leikhúsið sækja, borgi skattinn, þá er það að athuga, hvort það yrði þá ekki minna sótt, ef aðgöngueyririnn hækkaði. Það vita allir, að leiksýningarnar eru engin tekjulind. En jeg verð að treysta því, eins í þessu sem öðru, að hlutaðeigandi bæjarstjórn hagi sjer eftir ástæðunum og leggi ekki skatt á, nema það geti talist fært. Til skýringar skal jeg geta þess, að nú greiðir leikfjelagið eitthvert gjald af sýningum sínum.

Yfirleitt eru brtt. á þá lund gerðar, að ekkert er út á þær að setja.