28.05.1918
Neðri deild: 33. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 672 í B-deild Alþingistíðinda. (563)
41. mál, skemmtanaskattur
Gísli Sveinsson :
Brtt. mín er í samræmi við það, sem jeg ljet um mælt við 2. umr. málsins og fleiri háttv. þm. tóku þá fram. Jeg býst við, að nefndin geti sætt sig við og háttv. deild samþykt brtt. þessa, þar sem farið er mjög hógværlega í sakirnar. Brtt fer sem sje fram á, að beinlínis í lögunum skuli undanþegnar skatti skemtanir, sem einvörðungu eru söngskemtanir eða reglulegar leiksýningar, eða málverka-, höggmynda- og dráttmyndasýningar. Aðrar breytingar er ekki farið fram á í brtt.