05.06.1918
Efri deild: 36. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 219 í B-deild Alþingistíðinda. (57)

4. mál, almenn dýrtíðarhjálp

Framsm. (Sigurjón Friðjónsson):

Eins og háttv. deild hefir sjeð af nefndarálitinu og þingskjölunum, þá hefir nefndin gert nokkrar breytingar á frv.; en þó að breytingar þessar líti í fljótu bragði út fyrir að vera nokkuð miklar, þá breyta þær í rauninni ekki ýkja mikið efni frv.

Aðalástæður fyrir till. nefndarinnar eru færðar í áliti hennar, sem prentað er á þgskj. 294, og leyfi jeg mjer að vísa um það til þess.

Að tvennu leyti til breytir nefndin aðallega frv.; hún gerir aðgang vel stæðra sveitar- og bæjarfjelaga til dýrtíðarhjálpar erfiðari, og hún gerir illa stöddum sveitar- og bæjarfjelögum mögulegra að ná í fulla hjálp, með því að heimila lán til dýrtíðarhjálpar úr landssjóði, þegar á herðir, og fella það niður, að hjálpin sje fastbundin við 15 kr. hámark á mann í því sveitar- eða bæjarfjelagi, er þarfnast hjálparinnar.

Í þriðju grein í brtt. koma fram þau aðalskilyrði, sem bjargráðanefndin telur heppilegt að farið sje eftir, þegar dýrtíðarlánin eru veitt. Nefndin lítur svo á, sem það eigi að vera skilyrði fyrir dýrtíðarhjálp úr landssjóði, að sveitarfjelögin hafi gert tilraun til þess að fá lán annarsstaðar, og að með lánbeiðnum til landssjóðs fylgi skilríki fyrir því, að svo hafi gert verið og lánin ekki fengist.

Nefndin ætlast til þess, að landssjóður veiti lánin með líkum vaxtakjörum og bankarnir, til þess að góð vaxtakjör freisti manna ekki til þess að ásælast fje úr landssjóði, án þess að brýn nauðsyn sje til.

Nefndin ætlast ekki heldur til þess, að landssjóður veiti sveitar- eða bæjarfjelögum dýrtíðarhjálp sem styrk, fyr en þau hafa varið til dýrtíðarhjálpar minst 10 kr. á mann, fengnum sem lánsfje, en að úr því sje hjálp úr landssjóði veitt að hálfu leyti sem lán og hálfu leyti sem óendurkræfur styrkur. Setjum svo, að 1.000 menn sjeu í einhverju sveitarfjelagi og hafi tekið 10.000 kr. lán, og þurfi síðan að verja 10.000 kr. í viðbót til dýrtíðarhjálpar. Þá leggur landssjóður fram 5.000 kr. sem óendurkræfan styrk og 5.000 kr. sem lán, og þurfi sveitarfjelagið alls 30,000 kr., þá veitir landssjóður 10.000 kr. sem óafturkræfan styrk og 10.000 kr. sem lán.

Sumum mun sýnast svo, sem hjer sje seilst djúpt í vasa landssjóðs, en þegar athugað er, hve mikið sveitarfjelögin þurfa að leggja fram og hve dýrt lánsfjeð er, þá er það bert, að ekki kemur til hins óendurkræfa styrks úr landssjóði, nema um brýna þörf sje að ræða.

5. gr. í brtt. er aðallega um það, hvernig fjenu skuli vera varið innan sveitarfjelagsins, og gerir enga efnisbreytingu á frv.; er að eins orðabreyting.

Þá tekur við ný grein, sem nefndin ber fram til þess, að enginn vafi leiki á því, að menn eiga að fá hjálpina hjá dvalarsveit sinni, og jafnframt eru sett ákvæði um það, á hvern hátt lánin eigi að falla að lokum, ef lántakandi greiðir þau ekki sjálfur.

Með þessu hefi jeg gert stutta grein fyrir brtt. í aðalatriðunum, og læt jeg það, með skírskotun til nál. á þgskj 294, nægja, þar sem jeg er þess fullviss, að háttv. þingdm. hafa kynt sjer málið rækilega.