28.06.1918
Efri deild: 53. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 679 í B-deild Alþingistíðinda. (575)
41. mál, skemmtanaskattur
Fjármálaráðherra (S. E.):
Jeg gat þess, er jeg greiddi atkv. um 2. gr. frv. við 2. umr., að jeg gerði það með fyrirvara, og var það vegna þess, að mjer finst það ekki koma skýrt fram í frv. til hvers eigi að verja skattinum. Auðvitað mætti ákveða í reglugerð, hvernig með hann skuli farið, en best og hagfeldast er þó, að það sje skýrt tekið fram í lögunum sjálfum. Jeg ætlaði að koma fram með brtt. um þetta, en varð of seinn með hana, enda má lagfæra það í háttv. Nd.
Eins og brtt. er orðuð, er það alfarið lagt í vald sveitarstjórnanna, hvernig þær verja skattinum; þeim eru engin takmörk sett, því að þótt einhverjar óskir komi fram um það í umr. um frv., þá hygg jeg, að ekki sje unt að telja þær bindandi fyrir bæjar- eða sveitarfjelögin.
Mjer skilst, að báðir aðiljar vilji, að skattinum sje varið til lista eða líknar, og færi þá best á því að taka það fram í frv. Við það ættu allir að geta unað.