28.06.1918
Efri deild: 53. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 679 í B-deild Alþingistíðinda. (576)

41. mál, skemmtanaskattur

Guðjón Guðlaugsson:

Jeg verð að játa það, að jeg skil ekki vel afstöðu háttv. þm. Snæf. (H. St.), þar sem hann hrósar svo mjög allsherjarnefndinni fyrir breytingar hennar á frv. og það, að hún vill ekki láta verja skattinum til beinna sveitarþarfa, en svo jafnframt þessu hrósi sínu ber fram brtt., sem kippir burt einmitt því atriði nefndarinnar, sem hann hrósar mest. Brtt. hv. þm. (H. St.) er orðuð svo, að eftir henni má verja skattinum til hverra almennra sveitarþarfa sem vera vill, t. d. ómagaframfærslu, refaveiða, vegagerða o. s. frv. En það sjá allir, að þetta fer í öfuga átt við það, sem nefndin ætlaðist til, og í öfuga átt við það, sem sami háttv. þm. (H. St.) hrósaði nefndinni mest fyrir. Nefndin telur æskilegast, að þessu sje varið til líknar eða lista, en hún hefir ekki lögbundið neitt sjerstakt líknarstarf, heldur að eins afmarkað svæðið.

Jeg heyrði á mönnum um daginn, að þeir lögðu mikið upp úr því, að sveitirnar fengju sjálfar að ráða þessu; að eins væru þeim takmörk sett. En eins og þingið hefir vald til að setja skattinn, eins hefir það vald til að segja, hvernig honum skuli verja. Ef þessi skattur gengi beint í sveitarsjóð, þá mundi hann nærfelt undantekningarlaust verða til þess eins, að ljetta byrði á hæstu gjaldendum sveitarinnar, því að þegar útsvörunum er jafnað niður, eru áætlaðar allar tekjur sveitarsjóðsins, og svo jafnað niður því, er menn telja að til vanti. Því mundu útsvörin minka ef svo væri gert Og eigi mun það vera ætlunin að ljetta undir með hæstu gjaldendunum.

Í öllum sveitum landsins munu og vera til nógar bolur, er gætu notið góðs af skatti þessum; á meðal þeirra skal jeg nefna lestrarfjelög. í sveitarstjórnarlögunum er ekki gert ráð fyrir, að sveitirnar leggi fram tillag til þeirra eða styrk, en víða hefir verið unnið að þeim af kappi, og sumstaðar jafnvel um efni fram. Þau mundu því vel geta notfært sjer skattinn, og hann þar gert hreppsbúum mikið gagn og gaman.

Eini skatturinn, sem sveitirnar fá nú, er hundaskatturinn, og mjer þykir hálfóviðfeldið að setja þennan nýja skatt við hliðina á hundaskattinum í reikning sveitarsjóðanna. En mjer virðist rjettara, að þessi nýi skattur komi alls ekki inn í sveitarreikning, heldur standi fyrir utan hann, líkt og ellistyrktarsjóðurinn.