28.06.1918
Efri deild: 53. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 682 í B-deild Alþingistíðinda. (578)

41. mál, skemmtanaskattur

Halldór Steinsson:

Mjer þykir háttv. frsm. (M. T.) gera lítið úr nál. sínu, þar sem hann telur, að stjórnarráðið geti ekki bygt á því. En þó að ganga megi út frá því, að þessi ummæli hans sjeu rjett, þá er engin trygging fyrir því í 2. gr. frv., að fje þessu verði varið til lista eða líknarstarfsemi, því að það eru margar aðrar dyr opnar. Skal jeg t. d. benda á, að verja mætti fjenu til að leggja vegarspotta, sem sveitarsjóður hefir ekki ætlað að leggja fje til eða ber ekki skylda til. Fyrir það er ekki girt með 2. gr., eins og hún er orðuð. Brtt. mín er því rjettmæt í alla staði.