28.06.1918
Efri deild: 53. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 684 í B-deild Alþingistíðinda. (582)
41. mál, skemmtanaskattur
Kristinn Daníelsson:
Jeg er ekki fjarri því, að það sje alveg rjett, sem háttv. þm. Ak. (M. K.) sagði, að úr því að sveitar- og bæjarstjórnir eiga að semja reglugerðina, þá eigi þær og að ráða skattinum. Hins vegar er jeg alls ekki á móti því, að honum sje varið til líknarstarfsemi, og ætti þess að einhverju leyti að vera getið í lögunum. Jeg er þess vegna með hvorugt vel ánægður; hefði getað verið alveg samþykkur fyrri hluta 2. gr. með brtt. á þgskj. 407, en hefði viljað bæta við nýju atriði um, á hvern hátt ætti að ráðstafa skattinum með reglugerðarákvæði. Væri því ekki rjettast að laga þetta og taka málið út af dagskrá í þetta sinn, uns þessu hefði verið kipt í lag?