03.07.1918
Neðri deild: 62. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 686 í B-deild Alþingistíðinda. (588)
41. mál, skemmtanaskattur
Gísli Sveinsson:
Það er öðru nær og ekki svo að skilja, að jeg standi upp fyrir hönd háttv. frsm. (E. A.), sem ekki er viðstaddur, enda er jeg ekki í hlutaðeigandi nefnd, heldur stend jeg upp til þess að lýsa yfir því, að jeg get ekki greitt frv. þessu atkvæði mitt, eins og það liggur nú fyrir. Það hefir tekið þeim gerbreytingum æu háttv. Ed., að það er nú alt annað en það var, er þessi deild ljet það frá sjer fara. Það, sem mest áhersla var lögð á hjer í deildinni, var, að frv. yrði að bera með sjer, hvaða skemtanir ættu undir öllum atvikum að vera undanþegnar skattinum, en að ekki skyldi fela bæjar- eða sveitarstjórnarvöldum að útkljá, hvað skuli í hvert sinn teljast t. d. list eða vísir til listar. Það er kunnugra en frá þurfi að segja, að bæði í bæjar- og sveitarstjórnum sitja menn, sem sumpart alls ekki vilja hafa neitt með skemtanir að gera, hversu fræðandi eða glæðandi tilfinninguna fyrir hinu góða sem þær kunna að vera, eða sumpart skortir algerlega hæfileika til að greina á milli í þeim efnum. Alment tekið eru þeir fáir, sem geta greint þar í milli. En fyrir því ber alls ekki að fela þessum mönnum eða slíkum stofunum það verk, að vera þar æðsti dómari yfirleitt, heldur verður löggjafarvaldið að taka það upp á sig að gera þar beinar undantekningar, þótt ætíð geti tvímælis orkað. Það var þá líka svo, að í frv., eins og það fór frá Nd., voru undanteknar leiksýningar, söngskemtanir og listmyndasýningar, sem ekki mátti leggja skatt á, en að öðru leyti var heimilt að leggja á skemtanir alment.
Þá er enn fremur það atriði í frv., að skatturinn eigi nú að renna í bæjar- eða sveitarsjóð, en ekki í landssjóð. Fyrir mjer er þetta ekki mikilvægt atriði; hitt er mjer meira áhugamál, er jeg drap á fyrr. En hins ber þó að gæta, að þar sem landssjóður leggur fram allmikið fje til styrktar listum, þá er ekki nema eðlilegt, að skattur af þeim öðrum skemtunum, sem keppa við listina, skuli renna í landssjóð.
Jeg fyrir mitt leyti vildi nú helst óska, að málið væri tekið út af dagskrá, til þess að tími vinnist til að koma fram með brtt, en ef nefndin vill ekki ganga inn á það og frv. verður afgreitt nú, þá mun jeg greiða atkvæði á móti því, þar sem jeg tel það í þessari mynd geta orðið til skaðsemdar.