03.07.1918
Neðri deild: 62. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 687 í B-deild Alþingistíðinda. (589)

41. mál, skemmtanaskattur

Matthías Ólafsson:

Jeg skal geta þess, að fjárveitinganefndinni barst í hendur erindi frá leikfjelagi Reykjavíkur, þar sem það fer fram á talsverðan aukinn styrk úr landssjóði og telur vafasamt, að það geti haldið áfram starfsemi sinni að öðrum kosti. Nú mun öllum bera saman um það, að fjelag þetta starfar ótvíræðlega í listaráttina. Nefndin vildi því gjarnan styðja að því, að fjelagið gæti haldið áfram. Hins vegar virðist nú varhugavert að leggja til fje úr landssjóði án þess að geta bent á einhverjar tekjur á móti. Enn fremur leit nefndin svo á, að margar þær skemtanir, sem hjer eru sýndar, geti með engu móti heimfærst undir sanna list. Virðist því ekki nema rjett að leggja skatt á slíkar skemtanir, einmitt til þess að styrkja sanna list. Þar sem nú þetta mál var einmitt þá á döfinni í Ed., þá sneri nefndin sjer til Ed. og fór fram á það, að skemtanaskatturinn væri látinn renna í landssjóð, svo að hægra væri að styrkja leikfjelagið. En þessu virðist háttv. Ed. ekki hafa sint. Verður að telja það óheppilegt, og segi jeg því, eins og hv. þm. V.-Sk. (G. Sv.), að jeg get ekki greitt atkvæði með frv., eins og það er nú. En af því að jeg vildi geta samrýmt það að leggja skatt á óþarfar skemtanir, til þess að geta betur stuðlað að framförum og viðgangi sannrar listar, er jeg því fylgjandi, að frv. verði nú tekið út af dagskrá.