05.06.1918
Efri deild: 36. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 224 í B-deild Alþingistíðinda. (59)

4. mál, almenn dýrtíðarhjálp

Frsm. (Sigurjón Friðjónsson):

Lánveitingar samkvæmt brtt. nefndarinnar eru ekki sambærilegar við lánveitingar samkvæmt núgildandi lögum. Núgildandi lög freista manna. Kjörin, sem lánin eru veitt með, eru svo afbragðsgóð. En lánskjörin, sem sett eru í brtt., freista ekki.

Í sambandi við það, hve auðvelt sje að ná í dýrtíðarstyrk eftir frv. stjórnarinnar, skal jeg benda á, að efnað sveitarfjelag, sem getur lagt fram 10 krónur á mann, getur fyrirhafnarlaust fengið 5 krónur úr landssjóði, þótt þess væri engin þörf. 5 krónurnar væru eins og verðlaunagjöf fyrir að eiga 10 krónurnar. Svo skulum við hugsa okkur fátækt sveitarfjelag, sem getur ekki lagt fram 10 krónur á mann. Þá er tvent til. Annaðhvort fer stjórnin eftir lögunum og veitir ekki neinn styrk þessu fjelagi, eða, eins og hæstv. fjármálaráðh. gaf í skyn að hán mundi gera, veitir styrkinn vegna yfirvofandi neyðar, ofan í öll lög. Jeg skal ekki álasa stjórninni, þó að hún gerði þetta. En því er þá ekki best að halda opinni leiðinni í sjálfum lögunum? Því á að hlaða upp í skarð, sem búist er við, að farið verði um? Ef þessari leið er ekki haldið opinni í lögunum, er hætt við, að fátækari sveitarfjelögin beri sig síður eftir lánunum og styrknum en þau efnaðri, og það væri illa farið. Ef mönnum þætti nauðsynlegt að setja styrknum einhver takmörk, mætti auðvitað skjóta slíku ákvæði inn í 4. gr. brtt. Sjálfar brtt. standa hvorki nje falla með því atriði. En nefndin sá enga ástæðu til þess að setja neitt hámark, því að hámarkið væri í rauninni dauður lagastafur, þegar í nauðirnar rekur, eins og hæstv. fjármálaráðherra hefir bent á.