03.07.1918
Neðri deild: 62. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 690 í B-deild Alþingistíðinda. (592)

41. mál, skemmtanaskattur

Jörundur Brynjólfsson:

Jeg held, að það sje óþarfa ótti hjá háttv. þm. V.-Sk. (Gr. Sv.), að bæjarstjórnir muni misbeita því valdi, sem þeim er veitt með þessu frv. Þær hafa haft þetta vald, og held jeg, að engin ástæða sje til þess að kvarta yfir því, að þær hafi farið illa með það. Sje jeg því ekki annað en að öldungis áhættulaust sje að samþykkja frv.

Viðvíkjandi því, sem háttv. þm.V.-Ísf. (M. Ó.) talaði um, að skattleggja aðrar skemtanir til þess að styrkja leikfjelagið eða þesskonar stofnanir, skal jeg geta þess, að jeg álít ekki rjett að ákveða slíkt í lögum, skattleggja til sjerstakra stofnana, heldur sje miklu rjettara, að bæjar- og sveitarstjórnir hafi ráð á fjenu og styrki af því, sem sínu fje. Eins og öllum er kunnugt, styrkir nú bæjarsjóður Reykjavíkur leikfjelagið. (M. P.: Tekur með annari hendi það, sem það gefur með hinni). Jeg held, að það sje smáræði, sem bærinn tekur af fjelaginu, og hygg, að hann sje fús til þess að hækka tillagið til leikfjelagsins. Sýnist mjer því alls ekki rjett að skattleggja sjerstakar skemtanir á þennan hátt. Með því tel jeg skapað misrjetti.

Mjer liggur í ljettu rúmi, þótt málið sje tekið út af dagskrá, en vænti þó, að það verði samþykt óbreytt.