03.07.1918
Neðri deild: 62. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 690 í B-deild Alþingistíðinda. (593)
41. mál, skemmtanaskattur
Matthías Ólafsson:
Örfá orð til þess að leiðrjetta það, sem háttv. 1. þm. Reykv. (J. B.) sagði um styrkinn frá Reykjavíkurbæ til leikfjelags Reykjavíkur. Það er rjett, að bærinn veitir fjelaginu 500 kr. styrk, en tekur svo aftur af fjelaginu 5 kr. fyrir hverja leiksýningu. Þetta kalla jeg að taka með annari hendinni það, sem gefið er með hinni, og var það því alveg rjett, sem háttv. þm. Stranda. (M. P.) skaut fram í ræðu háttv. 1. þm. Reykv. (J. B.) Það, sem vakti fyrir fjárveitinganefndinni, er hún fór fram á það við Ed. að láta skattinn renna í landssjóð, var að tryggja leikfjelaginu sem hæstan styrk, til þess að það geti orðið öllu landinu til sóma. En þó verður það fyrst og fremst auðvitað Reykjavíkurbæ til sóma. Að vísu veitir það gestum, er heimsækja bæinn, holla gleði, en það er þó fyrst og fremst bænum til sóma, að það starfi vel. Og þar sem nú landssjóður þarf að hlaupa undir bagga, er ekki nema eðlilegt, að hann taki í staðinn fje af þessum óþörfu skemtunum.
Af þessum ástæðum vil jeg ekki, að skatturinn falli til bæjarstjórna, heldur til landssjóðs, til þess að hann verði til gagns, með því að auka sanna list í landinu. Með því getur sá skaði og böl, sem segja má að þjóðin bíði af ljelegum sýningum og skemtunum, vegið nokkuð upp í þeirri gleði og mentunaráhrifum, er sönn list veitir mönnum.