05.06.1918
Efri deild: 36. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 228 í B-deild Alþingistíðinda. (62)
4. mál, almenn dýrtíðarhjálp
Atvinnumálaráðherra (S. J.):
Eins og sjá má af hinu upphaflega frv. stjórnarinnar og frv. eins og það kom frá háttv. Nd., þá er einn aðalmunur á því og till. háttv. nefndar hjer.
Hjer vill nefndin breyta frv. þannig, að farið sje inn á lánaleiðina, en í frv., eins og það kom frá Nd., er ekki gert ráð fyrir því, nema svo framarlega sem hungur og manndauði vofir yfir og öll önnur úrræði reynast óframkvæmanleg. Og ég fyrir mitt leyti verð að halda fast við þann grundvöll, sem lagður var með frv. í Nd.
Háttv. nefnd hjer vill fara milliveg, sumpart veita óafturkræfan styrk, en meginreglan er þó lánsheimild.
Jeg lít nú svo á, að ekki muni fara svo illa til næsta þings, að ekki dugi hjálp sú, sem áætluð er í frv., eins og það var samþ. í Nd.
Háttv. framsm. (S. F.) sagði, að hjer væri ekki um miklar breytingar að ræða. En jeg vil segja, að frv. með brtt. nefndarinnar mundi fremur líta út sem nýtt frv. en breytt, sjerstaklega með tilliti til þeirra byltinga á orðalagi og greinum, sem farið er fram á. Og svo er aðalmunurinn, lánaleiðin, sem farið er inn á.
Háttv. framsm. (S. F.) sagði líka, að eftir frv. mundi verða of opin leið til þess að fá styrkinn. Slíkt er þó að öllum líkindum fyrirbygt með því ákvæði, að sveitarfjelögin leggi til 2/3 hluta af styrktarfjenu.
Jeg get nú ekki skilið, að til sjeu þau sveitarfjelög, sem ekki geti bjargað sjer næsta ár með atbeina efnilegra og góðra manna, ef ekki verður fjárfellir, en fyrir því er ekki gert ráð hjer, enda mundi það eins geta borið að hendi í efnilegri sveitunum.
En hrökkvi sveitarfjelögin ekki til með hjálpina, þá standa sýslufjelögin þeim að baki eftir gildandi lögum.
Hjer er því um ótta að ræða, sem ekki er á neinu bygður, eftir útlitinu nú að dæma.
Mjer virðast brtt.menn gera ráð fyrir, að fá megi lengi lán í bönkunum, en það er mótsögn við hitt, sem þeir annars sýnast byggja á.
Þá vildi jeg minnast á skýrslur þær, sem stjórnarráðið á að fara eftir, t. d. skýrslur um árangurslausa hjálparleitun til bankanna, og verður þá að koma skýrsla frá öllum bönkum á landinu, og er það mikil fyrirhöfn og hætt við, að slíkar skýrslur verði ekki ábyggilegar.
Brtt. 4 er mjer ekki vel ljós. Þar er sagt: þegar búið sje að veita 10 fyrstu kr. sem lán, að meðtöldum öðrum lánum. Jeg veit ekki, hvort þar eru með talin lán úr landssjóði eða ekki. En það skiftir ekki miklu máli.
En svo að jeg viki aftur að skýrslunum, þá hygg jeg, að þrátt fyrir þær verði vandi að skera úr, hverjum veita eigi lán. En hins vegar hygg jeg, að ekki þurfi að gera ráð fyrir slíkri neyð næsta ár, að ekki hrökkvi til sveitarkraftur, sýslufje og bankalán.
Jeg vil líka benda á það, að landsstjórnin getur þrýst að bönkunum að veita lánin.
En eftir frv. Nd. er það miklu vafningsminna að veita styrkinn; þar er að eins farið eftir reikningum bæjar- og sveitarstjórna um það, að fje því, sem varið hefir verið til dýrtíðarhjálpar, hafi verið skynsamlega og vel varið til brýnustu nauðsynja.
Og þar er ekki heldur um það að villast, hve mikið það getur orðið, fjeð, sem landssjóður verður að láta af hendi.
Það má ef til vill ekki leggja mikið upp úr því, hvaða álit núverandi stjórn hefir á lánaleiðinni. En henni ætti þó að vera kunnugast um, hvernig sú tillöguleið hefir reynst, og einnig ætti hún frekar að geta giskað á, hvernig hún mundi reynast framvegis.
Jeg tek það aftur fram, að jeg tel ekki sjáanlegar ástæður til þess að gera ráð fyrir því hallæri til næsta þings, að stjórnin geti ekki bætt úr því eftir frv. Nd. Það hefir verið tekið sem dæmi hreppur með 300 íbúum, og segjum, að 1/3 hreppsbúa þarfnist hjálpar, þá verða það 45 kr. á mann, sem fæst eftir frv. Nd., og vonandi þarf ekki meira til þess að bjarga frá neyð, en færi svo, þá mundi stjórnin ekki láta undir höfuð leggjast að bjarga frá hungursvandræðum, jafnvel þótt hún hefði ekki lagabókstaf fyrir þeim framkvæmdum.