10.06.1918
Neðri deild: 45. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 707 í B-deild Alþingistíðinda. (656)

93. mál, bráðabirgða útflutningsgjald

Einar Arnórsson:

Jeg vil leyfa mjer að koma með brtt. við 1. gr. frv. þessa. Það er að vísu ekki nema orðabreyting, en ef hún yrði samþ., ætla jeg, að frv. yrði skýrara. Það stendur í frv., að það megi „leggja með reglugerð eða reglugerðum útflutningsgjald, auk þess útflutningsgjalds, sem nú er lögboðið, á vörutegundir þessar“ o. s frv. í staðinn fyrir orðin „auk þess útflutningsgjalds, sem nú er lögboðið“, vil jeg að komi orðin „auk lögboðinna útflutningsgjalda“.

Það er kunnugt, að það er frv. á leiðinni í Ed, og í því er farið fram á, að lagt verði útflutningsgjald á vörur. Þetta frv. er frv. um stimpilgjald, með ákvæðinu um, að stimpla skuli farmskírteini. Þar sem telja má víst, að frv. þetta verði að lögum, þá verða innan skamms tvenn lög um útflutningsgjöld. Þau útflutningsgjöld, sem við þekkjum nú, eru frá 1881, 1894 o. fl.

Ef frv. yrði nú orðað eins og jeg vil, þá leikur enginn vafi á því, að hjer er um öll útflutningsgjöld að ræða, sem til eru eða verða að lögum meðan beitt er lögheimild þeirri, sem felst í þessu frv. Að svo mæltu leyfi jeg mjer að afhenda forseta tillöguna.