10.06.1918
Neðri deild: 45. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 709 í B-deild Alþingistíðinda. (660)
93. mál, bráðabirgða útflutningsgjald
Benedikt Sveinsson:
Mjer þykir þessi skýring ekki ljós, því að það var ekki verið að tala um þá, sem fengju lægra verð heldur en breska verðið, heldur var verið að tala um þá, sem fengju hærra verð fyrir vöru sína.
Ef það er tilætlunin að taka alla verðhækkunina af hverjum seljanda, sem fer fram úr breska verðinu, hví á þá ekki að taka það berum orðum fram? Ekki tjáir að setja slíkt ákvæði í reglugerð, nema það sje heimilt að lögum. Hjer getur verið um verulegar fjárhæðir að ræða, og ef það er ekki fullljóst, hvað í lögunum liggur, þá verður það orsök að deilum og málaferlum. Það er hægurinn hjá að gera ákvæðin nógu glögg í lögunum, til þess að koma í veg fyrir þrætur og málaferli, sem ella verður ekki hjá komist.