10.06.1918
Efri deild: 39. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 711 í B-deild Alþingistíðinda. (669)
93. mál, bráðabirgða útflutningsgjald
Karl Einarsson:
Jeg hlustaði á umr. um frv. þetta í hv. Nd, og skildist mjer á þeim, að meiningin með frv. ætti að vera sú, að gera landsjóð skaðlausan, þótt vörur, sem hann keypti, yrðu metnar hærra en hann getur fengið fyrir þær eftir samningunum við Breta, að frádregnum kostnaði.
En eins og frv. nú er orðað, er landsstjórninni veitt heimild til að leggja útflutningsgjald á eina vörutegund í heild sinni, ef landssjóður skaðast á henni, þótt ekki sje nema nokkrum hluta þeirrar sömu vörutegundar.
En eftir því, sem mjer hefir skilist á umr., þá er ekki til þess ætlast, að svo verði, enda get jeg ekki fallist á það.
En þetta er ekki skýrt tekið fram í frv., og vil jeg því leyfa mjer að bera fram brtt. við frv, sem fer fram á, að það verði skýrt tekið fram, að gjaldið skuli að eins lagt á þann hluta hverrar vörutegundar, sem landssjóður biður halla á. Þetta verður þá nokkurskonar verðskattur.
Og þar sem því hefir verið lýst yfir, að til þess sje ætlast, vona jeg, að hæstv. stjórn og háttv. þingdm. hafi ekkert á móti brtt. þessari.