20.06.1918
Neðri deild: 52. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 715 í B-deild Alþingistíðinda. (681)

99. mál, afhending á landi til kirkjugarðs í Stokkseyrarsókn

Flm. (Einar Arnórsson):

Af greinargerð þessa frv. geta menn sjeð, hvernig á því stendur. Þar er farið fram á af sóknarnefnd Stokkseyringa, að þeim sje heimilað að taka eignarnámi land undir kirkjugarð. Þetta frv. er sniðið eftir lögum um sama efni fyrir Reykjavík, frá 1915. Sje jeg ekki að mál þetta sje svo flókið, að ástæða sje til að vísa því til nefndar, þótt jeg hafi ekkert á móti því í sjálfu sjer.

Skal jeg ekki ræða frv. frekar, en býst við, að óhætt sje að láta það ganga áfram nefndarlaust.