05.06.1918
Efri deild: 36. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 258 í B-deild Alþingistíðinda. (74)
4. mál, almenn dýrtíðarhjálp
Halldór Steinsson:
Jeg vil að eins gera örstutta grein fyrir atkv. mínu, því að jeg er í nokkrum vanda með það.
Frv. stjórnarinnar hefir þann tilgang að hjálpa, ef almenna neyð ber að höndum hjá einhverju sveitarfjelagi. En þótt sá sje tilgangur frv., þá verður þeim tilgangi ekki náð, þótt frv. verði að lögum. Það liggur í augum uppi, að 15 kr. styrkur á mann hvern er of lágur til þess, en hins vegar er hann, þótt hann sje svona lágur, nógu hár til þess að binda landssjóði tilfinnanlega bagga, þar sem hann gæti kostað landssjóðinn, eftir því er hæstv. fjármálaráðherra sagðist frá, alt að 1/2 miljón kr. Auðvitað er þar gengið út frá, að öll sveitarfjelög landsins mundu nota styrkinn. Það má raunar gera ráð fyrir, að svo verði ekki, en jafnvíst er hitt, að mikill meiri hluti þeirra mundi nota hann, því að sveitarfjelögin mundu hegða sjer hjer eins og hver „praktiskur“ maður mundi gera, en allir fjármálahygnir menn mundu taka 100 kr. lán, ef þeim væru jafnframt gefnar 33 krónur, og það án tillits til þess, hvort mikil eða lítil þörf væri til lántökunnar. Það er því mjög hætt við því, að mikið af þessu yrðu óþarfa útgjöld fyrir landssjóðinn. Og þeim mun fremur er jeg á móti þessu, þar sem hæstv. fjármálaráðherra lýsti yfir því, að ef verulega neyð bæri að höndum, teldi stjórnin það skyldu sína að taka í taumana og hjálpa, án tillits til þess, hvort hún hefði lagaheimild til þess eða ekki. Enn fremur er þetta óþarft, þar sem dýrtíðarlög síðasta Alþingis eru enn þá í gildi og stjórnin samkvæmt þeim hefir heimild til að lána sveitarfjelögum, ef neyð ber að höndum.
Brtt. bjargráðanefndarinnar byrja vel, en þegar 4. gr. nefndarinnar tekur við, þá finst mjer, að nefndin komist í ósamræmi við það, er fyrri till. hennar halda fram, því að í fyrri greinunum er því haldið fram, að miða verði dýrtíðarhjálpina einvörðungu við þörfina, sem er fyrir hana, en í 4. gr. nefndarinnar er sama sem verið að ýta undir sveitarfjelögin að taka dýrtíðarlán, þótt þörfin sje ekki fyrir hendi. Um að svo sje er jeg samþ. hæstv. fjármálaráðherra.
Lögin verða að vera svo, að hægt sje að veita hjálp, þar sem hennar er þörf, en ekki veita hana jafnt verðugum og óverðugum.
Jeg vildi því óska þess, að nefndin tæki nú brtt. sínar aftur og lagaði þær til 3. umr., því að eins og þær liggja nú fyrir, get jeg ekki greitt þeim atkv. mitt.