29.05.1918
Efri deild: 30. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 732 í B-deild Alþingistíðinda. (744)
75. mál, heimild til ráðstafana út af Norðurálfuófriðnum
Halldór Steinsson:
Hjer er komið fram frv., er jeg hygg að sje lítt framkvæmanlegt, og þótt það væri framkvæmanlegt, mundi það í framkvæmdinni reynast viðsjárvert. Hjer er farið fram á að banna innflutning á öllum vörum, öðrum en nauðsynjavörum, nema stjórnin gefi sjerstakt leyfi til. En hver á nú að dæma um það, hvað sje nauðsynjavara og hvað ekki? Auðvitað landsstjórnin sjálf, eða með öðrum orðum okkar ágæta atvinnumálaráðaneyti. Nú eru vafalaust skiftar skoðanir um það í mörgum tilfellum, hvað sje nauðsynjavara og hvað ekki. Þá er það stjórnarinnar að úrskurða, og er þá hætt við, að sá úrskurður verði oft og einatt hæpinn og kunni að valda misskilningi og óánægju. T. d. mætti nefna óþarfar vörur, sem fyrir margra alda vana og neyslu hafa fest djúpar rætur með þjóðinni, svo sem kaffi og tóbak. Þessar vörur eru ekki nauðsynjavörur og geta jafnvel verið skaðlegar, ef þeirra er neytt í óhófi, en þó hygg jeg, að allur þorri landsmanna tæki það óstint upp, ef þing og stjórn bönnuðu aðflutning á þeim. En svo er annar flokkur af vörum, sem engum getur blandast hugur um að sjeu óþarfar, og um þær ris auðvitað enginn ágreiningur.
Jeg drap á það, að frv. þetta væri mjög óheppilegt, þótt framkvæmanlegt væri. Flestar þær vörutegundir, sem hjer kemur til mála að banna innflutning á, eru tollaðar, og eru tollarnir af þeim drjúgur hluti af tekjum landssjóðs. Með hverju hefir nú háttv. flutnm. (M. T.) hugsað sjer að bæta landssjóði þá rýrð, sem verður á tekjum hans, ef frv. þetta verður að lögum? Jeg hjelt, að fjárhagur landssjóðs væri ekki svo glæsilegur, nú sem stendur, að hann mætti við því, að kipt væri burt sumum stærstu tekjulindunum, án þess að sjáanleg væru nokkur sköpuð ráð til þess að bæta landssjóði þann halla með nýjum tekjustofnum.
Þá álít jeg, að þetta frv. gangi of nærri atvinnufrelsi manna og gæti valdið miklu misrjetti. Eins og jeg áðan gat um, eru skiftar skoðanir um það, hvort ýmsar vörutegundir sjeu nauðsynjavörur. Ef landsstjórnin gerir einni af þessum vafasömu vörutegundum hærra undir höfði en annari, er það sama og að hún geri einum kaupmanninum hærra undir höfði en öðrum. Mundi það ekki að ósekju geta vakið mikla gremju. Með þessu frv. væri stjórninni fengið óeðlilega mikið vald og vandi. Trúi jeg því ekki fyr en jeg tek á, að hún vilji takast þann vanda á hendur.
Annars er ekki óhugsandi, að sjóða mætti upp úr frv. annað sanngjarnara frv., sem fari fram á, að bannaður verði innflutningur á þeim vörum einum, sem ekki orkar tvímælis að sjeu óþarfar.
Þess vegna vil jeg fyrir mitt leyti ekki meina frv. að ná fram að ganga við þessa umræðu. Geri jeg það í þeirri von, að háttv. nefnd beri frv. fram við næstu umræðu í nýrri og betri mynd.