15.06.1918
Efri deild: 45. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 755 í B-deild Alþingistíðinda. (768)

75. mál, heimild til ráðstafana út af Norðurálfuófriðnum

Guðjón Guðlaugsson:

Jeg skal geta þess strax, að jeg er bókstaflega samþykkur brtt. háttv. þm. Ísaf. (M. T.), nema jeg álít, að gera þurfi orðabreyting þá, sem hv. þm. Seyðf. (Jóh. Jóh.) benti á.

Jeg get ekki skilið, hvernig hv. þm. hafa getað haldið því fram, að frv. þetta væri óþarft, og það kemur af því, að jeg get hvergi fundið í lögum nr. 5, 1. febrúar 1917, eða lögum nr. 6, 8. febrúar 1917, neitt áreiðanlegt ákvæði, sem heimili stjórninni það, sem hjer er farið fram á. Og þar sem lagaákvæði um þetta er ekki til áður, þá er ekki hægt að segja að frv. sje þýðingarlaust: hitt væri sönnu nær að segja, að það væri skaðlegt, ef menn þá hefðu nokkur rök að færa fyrir að svo væri.

Brtt. finst mjer fara að öllu leyti í rjetta átt. Það er vitanlegt, þar sem í fyrsta lagi verður að takmarka aðflutninga til landsins, vegna farkosta, og í öðru lagi verður að takmarka peningaútlát landsins, að þá verður stjórnin að hafa heimild til að banna aðflutning á ónauðsynlegum vörum og einnig að takmarka aðflutning á vörum, sem ekki teljast með öllu ónauðsynlegar, til þess að helstu nauðsynjar náist.

Það ætti nú öllum að vera ljóst, að svo mikilsvert atriði sem þetta þarf beint lagaákvæði, en ekki dugir að lesa það milli línanna í öðrum lögum, eða þótt fá megi það út úr anda þeirra, sem svo er kallað.

Jeg álít það einnig nauðsynlegt, að landsstjórnin hafi heimild til að ákveða álag á vörum.

Eins og háttv. 6. landsk. þm. (G. B) tók fram, hefir verðlagsnefndin rannsakað verðlag stórkaupmanna og komist að þeirri niðurstöðu, að þeir leggi óhæfilega mikið á vörur sínar.

Bjargráðanefndinni er einnig kunnugt um þetta, af dæmum, sem tilgreind eru í skjölum, sem stjórnin hefir lagt fyrir hana, og hefir hún komið fram með till. út af því um tilhögun landsverslunarinnar í ýmsum greinum.

Þá er ný brtt., við 1. gr. laga nr. 5, 1. febrúar 1917, sem háttv. þm. Snæf. (H. St.) kallaði síðustu útgáfuna. En jeg tel þá brtt rjettmæta og ekki þýðingarlausa.

Árangurinn af henni hlýtur að verða sá, að kaupmenn geta ekki samdægurs og stríðinu lýkur breytt verðlagi á vörum sínum og farið að keppa við landsverslunina. En það álít jeg að sje nauðsynlegur varnagli til að verja hana tjóni, því að eins og kunnugt er víkur öðruvísi við með hana en aðrar verslanir. Henni er altaf ætlað að selja eins lágt og hægt er, en kaupmenn geta lagt á vörur sínar eftir vild og bætt sjer þannig fyrirfram halla þann, sem þeir verða fyrir, þegar vörur falla í verði, en þetta er ekki heimilt fyrir landsverslunina. Það gæti því skift tugum þúsunda eða jafnvel miljónum, sem tapaðist við verðfall að stríðslokum, ef ákvæði þetta væri ekki. Öðru máli væri að gegna, ef landsstjórninni væri nú heimilað að leggja á vörurnar fyrir því væntanlega verðfalli.

Kaupmannastjettinni er ekki heldur gert rangt til með þessu, þegar þess er gætt, að landsverslunin verslar með að eins fáar vörutegundir og þá helst þær, sem síst græðist á, og þar sem landsverslunin mundi strax hætta að flytja inn vörur, þá yrði það ekki nema nokkurra mánaða bil, uns kaupmenn gætu aftur farið að taka gróða sinn óskertan.

Og fyrst og fremst ber okkur að taka tillit til hags landssjóðs og setja hann hærra en kaupmannastjettina.

Jeg skil því ekki, hvernig sumir hv. þm. geta verið á móti frv. þessu, sem er í öllum greinum þarft og rjett. Verðlagsnefndin kemur í rauninni ekki þessu máli við, en jeg lít þó svo á, að ef út. flutningsnefndinni verður starf sitt ofvaxið, þá sje rjett að halda verðlagsnefndinni, en auðvitað mun þetta ljetta störf hennar að miklum mun.