13.05.1918
Neðri deild: 21. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 88 í B-deild Alþingistíðinda. (8)

4. mál, almenn dýrtíðarhjálp

Fjármálaráðherra (S. E.):

Jeg skal leyfa mjer að fara svo fljótt yfir sögu, sem jeg get, að þessu sinni. Jeg vil fúslega játa, og veit, að öll stjórnin er sammála um það, að frumv. það, er vjer bárum fram, gengur ekki mjög langt og veitir almenningi ekki mikla hjálp. En vjer höfum sniðið það sem mest eftir fjárhag landsins. Við 1. umr. málsins gat jeg þess, hvaða ástæður hefðu vakað fyrir stjórninni, er hún hvarf af lánabrautinni. Jeg gat þess, að lánbeiðnir þær, sem komu til stjórnarinnar síðastliðinn vetur, sem þó ekki gat talist örðugur, hefðu numið ca. tveim milj. króna. Sjá allir, að landssjóð hefði munað það ærið mikið að gegna þessum lánbeiðnum. Þessar miklu fjárbeiðnir, í sambandi við fjárhag landsins, gerðu það að verkum, að stjórnin taldi rjett að hverfa frá lánaaðferðinni.

Í sambandi við þetta vildi jeg benda á, að í því landi, þar sem dýrtíðarráðstafanir eru fullkomnastar, nefnilega Danmörku, eru engin lán veitt, heldur styrkur, sem ekki er afturkræfur. Honum er fyrir komið, eins og frv. stjórnarinnar fer fram á, þannig, að sveitarfjelögin fá vissan hluta og svo greiðir ríkissjóður vissan hluta á móti. En í Danmörku er greidd langtum hærri uppbót úr landssjóði á hvern mann en hjer er farið fram á.

Auk þessa skal jeg geta þess, að þar eru gerðar ýmsar aðrar ráðstafanir, til þess að gera mönnum ljettara að kljúfa dýrtíðarörðugleikana. Þannig er mönnum sjeð fyrir feitmeti fyrir kr. 3,20 kg., en framleiðendur fá kr. 4,50 pr. kg. Mjólkurlítrann fá menn fyrir 28 aura, og sjeð er fyrir því t. d, að kartöfluframleiðendur selji vissan hluta framleiðslu sinnar með tiltölulega lágu verði, er almenningur nýtur góðs af. Þeir, sem atvinnulausir eru, fá 19 krónur um vikuna, meðan svo stendur. En auk þess er haft mjög strangt eftirlit með verði á aðfluttum vörum. En vitanlega á sú þjóð miklu hægra með að láta fátæklingunum líða vel. Hún er efnuð og hefir auk þess farið þá leið, að leggja mikla skatta á efnamenn og þá, sem grætt hafa á dýrtíðinni. Slíkri ráðstöfun varð ekki komið fram hjer á þingi, er reynt var, og tjáir ekki að tala um það.

Þær aðalbreytingar, er hv. meiri hl. gerir á stjórnarfrv., eru fólgnar í því, að hann vill halda sjer við lánaleiðina, en hann vill takmarka lánin. í lögum þeim, sem nú gilda, eru stjórninni ekki sett takmörk í því efni. Hjer hefir nefndin gert ráð fyrir 20 krónum mest á mann. En ef eftir þessu er farið og þessarar heimildar neytt að fullu, þá nemur sú upphæð nálega 2 miljónum króna. (P. J.: Eftir hvaða reikningsaðferð?) Jeg reikna landsmenn 90 þúsundir að tölu, 20 krónur á mann, og verður það nákvæmlega reiknað 1.800 þúsund krónur. Í frv. stjórnarinnar er ætlaður 5 króna styrkur á mann, og yrði það 450 þúsund krónur. Jeg skil ekki, hví hinn hv. nefndarmaður (P. J.) hristir höfuðið.

(Atvinnumálaráðherra: Það er ekki hægt að skilja 6. gr. öðruvísi en hæstv. fjármálaráðherra gerir). Jeg reikna hjer eftir sama mælikvarða og jeg nota við stjórnarfrv. Jeg er ekki að fullyrða, að þetta fje verði tekið alt, en ef það er tekið alt, er það 1.800.000 krónur.

Það freistar manna, hvað lánskjörin eru góð í núgildandi lögum. En nú hefir meiri hluti nefndarinnar haldið sömu lánskjörunum. Fyrsta árið á ekki að borga neina vexti; sú vaxtafúlga verður á annað hundrað þúsund krónur. Þetta, meðal annars, hlýtur að verða til þess, að menn sæki fast að fá þessi lán. Nú bið jeg háttv. deild að athuga vel, að landssjóður hefir orðið að taka stór lán, og ef landið verður nú, eins og ráð má gera fyrir, að taka verslunina að enn meira leyti en verið hefir í sínar hendur, þá þarf auk þess að taka stórfje að láni. Ef nú á, auk þessa, sem nauðsynlegt er, að skylda landssjóð til að taka önnur stórlán fyrir aðra, þá fer að þyngjast róðurinn. Jeg geri ráð fyrir, að jeg fái það svar frá háttv. meiri hluta, að svo sje um hnútana búið, að lánanna megi ekki leita fyr en „veruleg neyð“ er fyrir höndum. „En það er veruleg neyð“, stendur í brtt. meiri hlutans, „ef bæjar- eða sveitarfjelagið getur eigi með eigin framlögum, nje með lántökum af eigin ramleik, hjá bönkum eða öðrum lánsstofnunum, forðað frá yfirvofandi hungri og harðrjetti“. Nú þykist jeg geta sagt um það af reynslunni, að þegar þessi lánsheimild er til fyrir landssjóðinn, muni bankarnir hiklaust neita bæjar- eða sveitarfjelögum um lán og segja þeim að fara í landssjóðinn. Síðastliðinn vetur var Reykjavíkurkaupstað neitað um 100 þús. króna lán, og landssjóður varð að hlaupa undir bagga til bráðabirgða. Nei, meðan þessi lánsheimild stendur, munu bankarnir láta landssjóð vera banka fyrir bæjar- og sveitarfjelög.

Háttv. meiri hluti stingur upp á því, að útnefndir verði tveir utanbæjar- eða utansveitarmenn til að kynna sjer ástæður bæjarmanna eða sveitarbúa; skuli stjórnarráðið nefna menn þessa til í bæjum, en sýslumenn í sveitum. Jeg geri ráð fyrir, að það geti orðið erfitt fyrir þessa eftirlitsmenn að fella ákveðna dóma. Jeg get mjer þess til, að stjórnarráðið myndi útnefna tvo Hafnfirðinga til að segja álit sitt um ástandið hjer í Reykjavík, ef til kæmi, en búist gæti jeg við því, að það yrði mikið og langvarandi starf fyrir Hafnfirðingana að mynda sjer fasta og rökstudda skoðun á ástandinu hjer. Auk þess má telja vist, að mælikvarðarnir, sem eftirlitsmenn legðu á það, hvað væri neyð og hvað ekki neyð, á mismunandi stöðum/yrðu mjög mismunandi. Jeg verð að halda fast við það, að sú leið, sem stjórnin hefir farið í frv. sinu, sje sú hyggilegasta af þeim leiðum, sem bent hefir verið á. Þar er gert ráð fyrir, að sveitarfjelögin fái styrk úr landssjóði svo framarlega sem þau vilja sjálf leggja fram 2 parta á móti hverjum einum úr landssjóði, og nemi landssjóðsstyrkurinn þó aldrei meiru en 15 krónum á hvern mann í sveitarfjelaginu. Sveitarfjelagið á sjálft að leggja fram alt fjeð til bráðabirgða. Fyrir Reykjavík mundi styrkur þessi nema 225 þúsundum króna. Jeg skal játa, að ef um verulega neyð er að ræða, er styrkur þessi lítill, en þó getur hann orðið til góðs stuðnings. En reki aftur á móti að „verulegri neyð“, að hungri, liggur í hlutarins eðli, að stjórnin hlýtur að gera það, sem í hennar valdi stendur, hvort sem hún hefir nokkur lög fyrir því eða ekki. Það mundi hvaða stjórn sem er telja heil- aga skyldu sina. Jeg skal játa, að þótt í stjórnarfrv. standi „til að afstýra verulegri neyð“, hefir stjórnin gert ráð fyrir, að styrkurinn verði veittur, þótt ekki standi hungur fyrir dyrum.

Því er haldið fram í nál. meiri hlutans, að erfitt muni vera fyrir stjórnina að greina milli venjulegra útgjalda og dýrtíðarútgjalda á reikningum bæjar- og sveitarstjórna. En stjórnin getur heimtað af sveitarstjórnunum venjulega reikninga, og getur með hliðsjón af þeim farið nærri um það, hve mikið fje fari til dýrtíðarráðstafana á reikningum þess árs, sem styrkinn ber upp á. Það ætti því að vera stjórninni í lófa lagið að sjá, hvort sveitarstjórnirnar ætluðu að fara í kringum bana. Menn verða líka að muna, að landssjóðsstyrkurinn er ekki veittur nema í móti komi 2/3 hlutar frá hreppsfjelaginu. Eftir því sem jeg þekki hreppsnefndir út um land, og jeg þekki þær margar, munu þær hugsa sig um tvisvar áður en þær leggja fje fram til dýrtíðarráðstafana, eins fyrir það, þótt þær eigi von á að fá 1/3 part af kostnaðinum endurgreiddan úr landssjóði. Landssjóðsstyrkurinn fer aldrei fram úr 450 þúsundum, þótt hann verði allur greiddur, en því fylgir sá kostur, að þá kæmi hann jafnt niður alstaðar. Þetta getur orðið til góðs stuðnings, og fyrir landssjóðs hönd þarf ekki að kvíða þessum útgjöldum. Betra er að veita þetta, og vita fyrirfram hvað það verður, en að gera landssjóð að banka fyrir alt landið og binda hann þannig við stór og örðug lán, auk alls annars, sem hann verður að standa straum af. — Hefi jeg þá minst á 2. gr. annarar brtt. á þgskj. 88, og verð fyrir hönd stjórnarinnar að leggja á móti því, að hún verði samþykt.

Einnig hefi jeg minst á 3. gr. sömu brtt., en vil bæta fáum orðum við. Eftirlitsmennirnir, sem þar er stungið upp á, hygg jeg að myndu að eins verða til fyrirhafnar og valda löngum drætti á nauðsynlegum framkvæmdum. Dýrtíðarráðstafanir mega ekki tefjast. Á þessum tímum má ekki hindra það með flóknum skrifstofubáknum, að hjálpin geti komið í tíma.

Í þessu sambandi vildi jeg og minnast lítils háttar á kolaúthlutunina í vetur, af því að tilefni hefir verið gefið til þess. Fyrirspurnum, sem komu frá sveitarstjórnum viðvíkjandi kolaúthlutuninni, var venjulega svarað daginn eftir að þær komu, og setti stjórnarráðið ákveðnar reglur um úthlutunina í hverju einstöku tilfelli. Jeg get ekki verið samþykkur nál. meiri hlutans um, að kolaúthlutunin hafi orðið til lítils eða einskis gagns, en þar stendur: „Nú orkar mjög tvímælis um, hve mikil áhrif þessi kolauppbót hafi haft til að bæta kjör þeirra“ o. s. frv. Verður þetta ekki skilið öðruvísi en að nefndin sje að draga úr gildi verðlækkunarinnar, en því verð jeg öfluglega að mótmæla. Hjer í. Reykjavík og annarsstaðar mun niðurfærslan á kolaverðinu hafa komið að mjög miklu gagni. Verður það ekki síst markað á því, hve fast þeir sóttust eftir að fá meira af ódýru kolunum, sem að einhverju leyti þóttust hafa orðið út undan. Verið getur, að sumum hreppsnefndunum hafi verið mislagðar hendur með úthlutunina. En alstaðar krafðist stjórnarráðið þess, að þeim fátækustu væri selt ódýrast og þeir væru látnir hafa mest.

Háttv. nefnd talar um, að það sje ekki heppilegt að dreifa hjálpinni á eina margar hendur og gert er ráð fyrir í stjórnarfrv. En jeg sje ekki betur en nefndin hafi fylgt líkri reglu og stjórnin. Hún hefir líka miðað við nef. Eftir hennar till. væri sú ítrasta hjálp, sem Reykjavíkurkaupstaður fengi, 300 þús. krónur, ef íbúar eru taldir 15 þús., sem mun nærri sanni. En eftir stjórnarfrv. mundi Reykjavík njóta 225 þús. kr. dýrtíðarstyrks alls. Meiri hlutinn hefir fylgt nákvæmlega meginreglu stjórnarfrv.

Yfirleitt virðist mjer ekki hyggilegt að draga sveitarfjelögin út á þá braut, að taka lán. Í brtt. meiri hlutans er þeirra beint freistað. Hyggilegra er að hvetja þau með styrkveitingu til að hjálpa sjer sjálf. Það er reglan, sem þær þjóðir, sem .viturlegastar dýrtíðarráðstafanir hafa gert, hafa altaf fylgt.

Um það atriði í 5. gr. annarar brtt. meiri hlutans, að sett skuli sjerstök ákvæði um hverja einstaka lánveitingu, er jeg alveg á máli nefndarinnar. Um þessi efni er mjög óráðlegt að gefa almennar reglur.

Þá er ein aðalbreyting nefndarinnar sú, að kippa atvinnuheimildinni burt, en setja í hennar stað heimild til að kaupa afurðir af dýrtíðarvinnu bæjar- og sveitarfjelaga. Jeg efast stórlega um, að þessi brtt. sje til bóta frá sjónarmiði landssjóðs. Mundi þetta baka stjórninni margskonar örðugleika. Það væri örðugt fyrir hana að ákveða, hvað hún ætti að kaupa, hve mikið og fyrir hve hátt verð. Eru stjórninni með þessu bundnir baggar, sem ekki skyldi. Hætt er við, að bæjarfjelög, sem kunnugt væri um þessa heimild, færu að leggja út í einhver og einhver fyrirtæki eftir eigin höfði, og ætluðu sjer svo að „kría“ fje út úr landssjóði fyrir afurðirnar, án tillits til þess, hvort hann hefði nokkuð við þær að gera eða ekki. Á þessu gæti mikið fje farið forgörðum. Hyggilegra væri að láta greinina í frv. stjórnarinnar standa óbreytta. Margir munu kann ske setja fyrir sig tjónið, sem varð að vegavinnunni og grjótvinnunni í öskjuhlíðinni í vetur, og mun nema alls milli 60 og 70 þús. króna. En það tjón stafar mikið frá óvenju örðugri aðstöðu við vinnuna. Veturinn var sem sje einhver mesti frostavetur, sem komið hefir um langan tíma. Strax er veðrátta fór að batna, varð niðurstaðan af vinnunni öll önnur. Grjótið er mikils virði, og er ástæða til að halda, að slík vinna bæri sig alveg, ef tíðarfar er gott. Jeg get ekki skilið þá menn, sem láta sjer detta í hug, að betra sje að gefa fje en að láta vinna fyrir það. Hollari mun vinnan vera þjóðinni en iðjuleysið, auk þess sem hún er ákaflega dýr á þessum tímum. Mikill markaður er og fyrir grjót hjer um slóðir og verður meiri. Höggið grjót kann því að verða meira virði en við nú gerum okkur í hugarlund. Ýmsir hafa þegar kornið til mín til að fala það grjót, sem unnið var í vetur, enda þykir það afbragðs vel unnið. Er ekki nema maklegt að geta þess í þessu sambandi, að það er verkstjóranum að þakka, og leysti hann starf sitt einkar vel af hendi.

Jeg hefi áður tekið það fram, og verð að leyfa mjer að leggja á móti því að heimila stjórninni það, með öðrum orðum, að brtt. verði feld, en frv.greinin látin landa.

Að því er snertir brtt. háttv. minni hluta skal jeg strax geta þess um brtt. við 5. gr., um lánsheimildirnar, að jeg verð, samkvæmt því, sem jeg hefi áður tekið fram, að vera á móti því, að sú regla verði höfð. En að því er snertir brtt. við 3. gr., þar sem svo er að orði komist:

„Áður en stjórnarráðið greiðir sveitar- eða bæjarstjórn það fjárframlag úr landssjóði, er 3. gr. ræðir um, skal það leita álits bjargráðanefndar hjeraðsins eða kauptúnsins, hvort brýn nauðsyn beri til fjárframlaga úr landssjóði, samkvæmt 1. gr.“,

þá veit jeg, satt að segja, ekki, hvort þetta er nokkur bót á stjórnarfrv. Jeg sje ekki betur en að stjórnin, ef hún fær þá reikninga, sem gert er ráð fyrir að hún fái, og að hún eftirliti sveitarsjóðsreikningana, geti fullkomlega dæmt um það atriði, og að hjer sje verið að búa til óþarfa krókaleið.

Í sambandi við brtt. við 4. gr. — um nauðsynjavörur — vil jeg geta þess, að vitanlega ætlast stjórnin til, að það gangi aðallega til þeirra sveita, sem. við erfiðust kjör eiga að búa, en vitanlega má þá líka búast við því, ef í neyð er komið, að þeir, sem ekki eiga við verulega neyð að búa, eigi og verði líka að fá eitthvað, en annars sýnist mjer ekkert sjerstaklega vera að athuga við það, þó að þessi brtt. verði samþykt.

Þá er hjer viðaukatillaga frá minni hluta bjargráðanefndar á þgskj. 107. Vildi jeg leyfa mjer, áður en jeg minnist á till. sjálfa, að spyrja háttv. framsm. minni hl. (J. B), hvort ekki beri að skilja till. svo, að styrkur sá yfirleitt, sem veittur yrði eftir lögum þessum, skyldi ekki skoðast sem sveitarstyrkur.

Að því er snertir viðaukatill. á þgskj. 94, frá háttv. 1. þm. Árn. (S. S.), þá hefir háttv. flutningsmaður hennar ekki minst á hana enn þá, og mun jeg því ekki tala um hana fyr en jeg hefi heyrt hann sjálfan láta álit sitt í ljós.

Mun jeg svo ekki fara fleiri orðum um þetta mál að sinni, en að eins lýsa yfir því, að jeg vil, að frv. stjórnarinnar verði samþykt, eða að aðal„principi“ þess verði haldið, og segi jeg það sjerstaklega vegna þess, að jeg tel, að fjárhag landsins sje betur borgið með því, en miður með lánveitingaleiðinni.