06.07.1918
Efri deild: 59. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 799 í B-deild Alþingistíðinda. (803)
109. mál, kaup landsstjórnarinnar á síld
Fjármálaráðherra (S. E.):
Eitt af fyrstu skilyrðunum fyrir því, að gengið verði inn á frv., er vissa fyrir sölunni til Svíþjóðar. En eins og áður hefir verið tekið fram, þá er þar að eins um líkur að ræða en enga vissu. En meðan svo er, álít jeg, að þingið geti ekki með neinu móti látið frv. frá sjer fara. En sú vissa gæti komið bráðlega, og teldi jeg því best, að málið biði þangað til.
En jeg fyrir mitt leyti sje ekki betur en að áhætta sje eftir sem áður nokkur, þótt vissa fengist um sölu til Svíþjóðar, jafnvel þótt hærra verð fengist en áætlað er í frv. Þrátt fyrir það er alt óvíst um þá síld, sem fara á til Ameríku, og það, sem seljast á hjer.
Jeg mun því ekki sjá mjer fært að greiða frv. atkv., án þess að dregið sje úr þeirri áhættu, og hefi jeg því hugsað mjer að koma fram með brtt. til 3. umr., til þess að færa niður ákvæðið í 2. gr, um síldarverðið.
Ákvæði 6. gr. finst mjer líka mjög óaðgengilegt. Jeg sje ekki betur en að á meðan ekki er víst, hve nær peningarnir koma frá Svíþjóð, þá geti það orðið allmikið fje, sem landssjóður verði að leggja út til bráðabirgða. Það gæti skift miljónum.
Og það láir mjer víst enginn, þótt jeg vilji gera mjer ljóst, áður en slíkt er samþykt, hvort landssjóður mundi geta haft slíkt fje á reiðum höndum. Jeg tel víst, að til þess þurfi að útvega ný lán og þau stór. Það getur háttv. deild sannfærst um af skýrslum, sem hjer hafa verið gefnar.
Auk þess er þetta ekki eini örðugi hjallinn, sem komast verður upp á, því að ekki er enn þá sagt, hve háar kröfur þær verða, sem verslunin gerir til landssjóðs til nýrra lána.
Jeg mun því einnig leyfa mjer að koma með brtt. við þessa gr. frv., til þess að lengja greiðslufrest landssjóðs.
Þá mun jeg einnig koma með brtt. við 7. gr. frv., þótt það skifti ekki eins miklu máli. En jeg lít svo á, að ef landssjóður á að bera alla áhættuna, þá verði hann einnig að eiga von á meiru af gróðanum, ef nokkur verður.
Háttv. þm Ísaf. (M. T.) benti á, að þótt hjer væri áhætta, þá væri það að eins í svip, og þótt halli yrði, þá væri landssjóði auðvelt að ná því inn aftur með auknum sköttum.
Þetta má rjett vera, en þess ber að gæta, að á þessum örðugustu tímum getur það skift miklu fyrir landssjóð að taka á sig þó að ekki sje nema bráðabirgðaáhættu.
Jeg hefi ekki sjeð mjer fært að koma með brtt. nú, en mun, eins og jeg hefi sagt, gera það við 3. umr.
Við erum allir sammála í stjórninni um það, en höfum að eins ekki komið okkur niður á því, hve langt skuli ganga.
Jeg mun því greiða frv. atkv. til 3. umr.